Mikil rigning verður í dag og á morgun á Austfjörðum og Suðausturlandi og bætast við rigningar sem verið hafa undanfarna daga. Veðurstofan varar við aukinni skriðuhættu. Jarðvegur er víða blautur eða vatnsmettaður og viðkvæmur.
Allt að 8 millimetra úrkoma á klukkustund
„Það er búið að rigna alveg ágætlega fyrir austan núna í nótt og í morgun. Mesta úrkoman er búin að vera á mælunum sem eru í byggð á Seyðisfirði, í Neskaupstað og á Fáskrúðsfirði. Það mun ábyggilega hækka vel í úrkomumælum á þessum svæðum áfram. Það er mikil ákefð sem mun standa alveg fram á kvöld. Svona 3-8 millimetrar á klukkustund á þessum svæðum og síðan mun þetta breytast í skúraleiðingar og él í nótt og á morgun,“ segir Unnur Blær Aðalbjargardóttir Bartsch, skriðusérfræðingur á Veðurstofunni.
Skriðuvakt Veðurstofunnar hvetur fólk til að sýna aðgát, sérstaklega undir bröttum hlíðum og þar sem grjóthrun er algengt. Síðasta sólarhring hefur úrkoma mælst 78 millimetrar á Fáskrúðsfirði, 64 millimetrar í Seyðisfirði og 62 í Neskaupstað.
Gul vindaviðvörun hefur verið gefin út fyrir allt landið og það lægir síðast á Vestfjörðum í fyrramálið.
Endurmeta stöðugt hættu í byggð
Veðurstofan er með eftirlitsmenn í þéttbýlisstöðum og fyrir ofan Seyðisfjörð og Eskifjörð er vatn í jarðvegi vaktað í borholum. Unnur segir ekki rætt um að grípa til rýminga eins og til dæmis á Seyðisfirði.
„Ekki eins og staðan er núna. Það er ekki til umræðu en ef einhverjar aðstæður breytast þá tökum við upp þráðinn og tökum ákvarðanir með það,“ segir Unnur Blær Aðalbjargardóttir Bartsch, skriðusérfræðingur á Veðurstofu Íslands.