Fréttastofa RÚV verður með aukafréttatíma í sjónvarpi vegna sjóslyssins fyrir austan land. Fréttatíminn hefst klukkan 12 og verður hægt að fylgjast með honum í sjónvarpi, í spilara RÚV og efst í þessari frétt.
Þrír sjómenn létust þegar skipið Jökull ÞH sökk 60 sjómílur austur af landinu í gær. Fjórtán var bjargað á lífi.