Þetta sagði Georg Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslunnar, á sérstökum blaðamannafundi í morgun vegna sjóslyss sem átti sér stað seinnipartinn í gær. Þrír fórust þegar fiskiskipið Jökull ÞH sökk og fjórtán skipverjum var bjargað. Hann segir að ef björg hafi borist aðeins klukkutíma seinna hefði mannfalið getað verið mun meira.
Georg fór yfir viðbragð Landhelgisgæslunnar og annarra viðbragðsaðila í gær. Hann segir að upp úr klukkan 17 í gær hafi Landhelgisgæslunni borist skilaboð frá Jökli ÞH um að það væri kominn leki í skipinu.
Georg segir það alls ekki gott að skipið hafi verið 60 sjómílur frá Íslandsströndum. Hann segir það óleyst málið hvers vegna skipið sökk og staðfestir að einn björgunarbáturinn um borð hafi verið fastur og ekki losnað eins og hann á að gera. Annar björgunarbáturinn hafi losnað frá skipinu en sá rak frá skipverjunum og þeir voru því bátlausir.
„Hvernig þetta atvikaðist vitum við ekki en það mun koma í ljós við rannsókn,“ segir hann og tekur fram að sjómennirnir hafi sýnt ótrúlega útsjónarsemi og þrautseigju.
„Þeir náðu að binda sig saman í sjónum og sýndu fram á þekkingu sem þeir höfðu aflað úr slysavarnaræfingum sjómanna,“ segir hann. Sigmenn Landhelgisgæslunnar hafi sagt það hafa verið mikla áskorun að losa sjómennina þar sem þeir voru flæktir í net og annað frá skipinu. Það hafi þurft að klippa þá lausa til að tengja þá við björgunarlykkju.
Þegar Landhelgisgæslunni barst tilkynning um neyðarástand frá Jökli ÞH beindi varðstjóri því til áhafnarinnar að klæðast flotgöllum.
„Nokkrum mínútum síðar lýsti skipstjórinn yfir neyðarsástand og að skipverjar væru að yfirgefa skipi,“ segir Georg og bætir við að Landhelgisgæslan hafi fylgst með skipverjum yfirgefa skipið og stökkva í sjóinn.
„Það var magnað að sjá það gerast. Flotgallarnir eru með sérstakan búnað. Þarna gátum við séð þá einn af öðrum stökkva í sjóinn.“
Hann tekur fram að skipstjórinn hafi tekið með neyðartalstöð og að Landhelgisgæslan hafi því getað verið í sambandi við sjómennina nánast allan tímann þótt það hafi verið slitrótt á köflum.
„Mig langar að segja ykkur frá samtölum sem við áttum við þá sem voru í sjónum. Þetta var ótrúlegt. Átakanlegt oft á tíðum. Við höfum ekki upplifað það fyrr að geta verið í beinu sambandi við þá sem eru að berjast fyrir lífi sínu í sjó í kolniðamyrkri. Varðmenn Landhelgisgæslunnar hreinlega töluðu líf í þessa menn, eða þau. Þau voru blíð og góð og komu með ábendingar um það hvernig menn ættu að bera sig að til að lifa þetta af. Sífellt að segja þeim bjartsýnar fréttir um komu þyrlu, komu skipa og ég held þetta hafi skipt verulegu máli. Þetta var allavega ótrúleg stund að vera þarna.“
Hann segir það ljóst að íslenskir sjómenn séu gerðir úr öðru efni en annað fólk. Mennirnir hafi verið í sjónum í fjóra tíma sem sé mjög langur tími. Það er talið að menn geti lifað af í sjónum í að mesta lagi fimm til sex klukkutíma klæddir umræddum flotgöllum. Mennirnir hafi því verið á fremsta hlunn. Ekki hefði mátt muna minna.
„Þeir voru því alveg komnir að ystu mörkum. Þeir báru það með sér að vera eitilharðir.“
Georg og aðrir frá Landhelgisgæslunni hafi hitt sex sjómannanna strax í gær.
“Við hittum sex þeirra í gær og þeir báru sig vel. Auðvitað var þetta átakanleg sjón að sjá, þeir komu þarna með teppi um axlirnar. Þeir voru dasaðir en furðu sprækir samt. Þetta var aðdáunarvert að sjá og ljóst að íslenskir sjómenn eru gerðir úr öðru efni.“
Hann tekur fram að Landhelgisgæslan hafi haft samband við samstarfsfélaga frá Danmörku, Noregi, Færeyjum og Grænlandi sem höfðu ekki tækjabúnað lausan til að veita aðstoð.
„Við vorum þarna bara ein.“
Hann segir veðrið hafa verið mjög slæmt á vettvangi og því hafi tekið mikinn tíma fyrir þyrlun að komast á vettvang.
Fréttin verður uppfærð.