Um fjörutíu manns mættu á samkomuna sem var skipulögð af Samráðsnefnd trú- og lífsskoðunarfélaga.
Sjómenn, bæði fyrrverandi og núverandi, auk aðstandenda féllust þar í faðma og nutu saman samverunnar.
Ljós voru þá einnig tendruð til minningar um sjómenninga þrjá; Aðalstein Steinþórsson, Eggert Ellertsson og Jacek Belina.
Guðni ræddi meðal annars við Jakob Rolland, kanslara kaþólsku kirkjunnar á Íslandi, og við hinn 18 ára Ásgeir Elí Gerðarson, sem ræddi við Vísi fyrr í dag.
Dagur Fannar Magnússon, prestur í Fríkirkjunni, og Kristrún Ýr Einarsdóttir hjá Samráðsvettvangi trúfélaga og lífsskoðunarfélaga fóru með nokkur orð á kyrrðarstundinni.
Þá var flutt kveðja frá Guðrúnu Karls Helgudóttur biskup og Höllu Tómasdóttur forseta.