Reykjavíkurborg varð fyrir netárás á hluta tölvukerfa sinna í gær. Fjöldi rafrænna þjónustukerfa var tímabundið tekinn úr sambandi. Í tilkynningu á síðu Reykjavíkurborgar segir að sum þjónustukerfi kunni að vera enn óaðgengileg.
„Staðan er sú að greining er yfirstandandi og vinna við til dæmis hreinsun, endurreisn kerfa og annað. Þar er Syndis að störfum og við erum að aðstoða við greiningu þar með starfsmönnum,“ segir Magni Sigurðsson, forstöðumaður netöryggisvarna hjá CERT-IS.
Árásin hafi beinst að ákveðnum upplýsingainnviðum Reykjavíkurborgar. Enn sé verið að greina hvað árásaraðilinn gerði nákvæmlega. Það sé allur gangur á því hvað slíkt taki langan tíma.
„Þau kerfi sem eru niðri eru umsóknir og annað sem er niðri í varúðarskyni til að tryggja öryggi annarra kerfa og gagna. Þannig að sú þjónusta sem liggur niðri er ekki þjónusta sem var talin bráðnauðsynleg.“
Stigmögnun atvika
Almannavarnir hafa lýst yfir óvissustigi almannavarna og virkjað viðbragðsáætlun vegna stöðu mála. Í síðustu viku var gerð árás á vefhýsingarfyrirtækið 1984 ehf. og tilkynnti Bláa lónið einnig netárás til CERT-IS í gær. Magni segist ekki geta verið fullviss um að árásin á Bláa lónið og Reykjavíkurborg tengist en þó séu einhver líkindi með þeim sem skoða þurfi nánar.
Fulltrúar CERT-IS og kollegar þeirra víðs vegar um heiminn hafa orðið varir við óvenjulega þróun netárása síðustu mánuði. CERT-IS fái líkt og áður fjölda tilkynninga dag hvern um árásir en nú til dags sé alvarleiki atvika að stigmagnast.
„Það er þessi stigmögnun í atvikum, að atvikin eru að verða mun víðtækari og alvarlegri. Það má alveg rekja stóran hluta af því til þessara opnu gervigreindartóla sem árásaraðilarnir eru að nýta sér til að bæði finna veikleika í kerfum og brjótast inn í þau,“ segir hann.
Með því að nýta gervigreind hafi árásirnar orðið almennari og þar með sé erfiðara að greina fótspor árásaraðilanna. Sömuleiðis verði árásirnar oft víðtækari, hraðinn sé meiri og nái árásaraðilinn að framkvæma fleiri hluti.