Eydís Ásbjörnsdóttir þingforseti las úr ræðu við upphaf þingfundar klukkan 13:30. Fór hún yfir atburði gærkvöldsins.
„Í gær varð sá hryggilegi atburður að fiskiskipið Jökull ÞH sökk sextíu sjómílur austur af Glettingi. Um borð voru sautján sjómenn. Þrír þeirra eru látnir en fjórtán var bjargað í hetjulegri björgunaraðgerð þar sem mikill fjöldi fólks á landi, á legi og í lofti lagði sitt af mörkum í samstilltu átaki. Slíkur atburður ristir djúpt í vitund okkar sem byggjum þetta land og vekur upp sterkar tilfinningar.“
Hún segir þingmenn syrgja sjómennina þrjá sem létu lífið í sjóslysinu í gær og samhryggjast aðstandendum þeirra einlæglega. Þá gleðjist þeir jafnframt innilega yfir björgun þeirra fjórtán sem komust lífs af úr þeirri þungu raun.
„Viðbrögð björgunaraðila í gær og í nótt einkenndust af yfirvegun, fagmennsku og ósérhlífni og liðveisla sjómanna á skipum úti fyrir Austurlandi bar vott um þann mikla samhug og samtakamátt sem einlægt ríkir þegar áfall ber að höndum. Íslenskt samfélag sýndi styrk sinn og samheldni við björgun skipverja af Jökli ÞH svo aðdáunarvert er. Ég votta aðstandendum þeirra sem létust djúpa hluttekningu í sorg þeirra og óska þeim sem komust lífs af alls velfarnaðar. Öllum þeim sem lögðu sitt af mörkum við björgunarafrek í gær færi ég einlægar þakkir Alþingis. Ég bið þingmenn um að rísa úr sætum í virðingarskyni við hin látnu.“