Einn þeirra þriggja skipverja sem fórust þegar fiskiskipið Jökull sökk austur af Íslandi í gærkvöldi var pólskur ríkisborgari.Þetta kemur fram í frétt AFP-fréttastofunnar sem hefur staðfestingu frá pólska utanríkisráðuneytinu. Vísir greindi frá því í morgun og hafði eftir heimildum að hinir tveir hefðu verið Íslendingar.Tveir Pólverjar voru meðal sautján skipverja um borð í Jökli og komst annar þeirra lífs af.
Pólverji meðal þeirra sem fórust með Jökli