Innnes og Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkurborgar hafa innkallað pakka með Corny 0% Added sugar Chocolate Multi 20 gramma orkustykkjum. Þetta gerðu þau eftir að málmhlutir fundust í vörunni.
Innköllunin snýr eingöngu að framleiðslulotu með best fyrir dagsetninguna 10.09.2027.
Matvælastofnun varar við neyslu orkustykkjanna og hvatti neytendur til að farga þeim eða skila í búðina þar sem þau voru keypt og fá þau bætt.
Pakkningarnar hafa verið til sölu í Plúsmarkaðnum, Hlíðarkaupum, Fjarðarkaupum og Corner Shop.