Sjóslysið í gær er með þeim mannskæðustu á þessari öld þar sem íslenskt skip á í hlut.
Þrír sjómenn létust þegar Jökull sökk 60 sjómílur austur af landinu í gær. Það hefur gerst tvisvar áður á öldinni að svo margir hafi farist í sama sjóslysinu. Aldrei á þessari öld hafa fleiri farist.
Báturinn Svanborg SH varð aflvana í vondu veðri grunnt vestur af Snæfellsnesi í desember 2001. Fjórir voru í áhöfn skipsins sem rak upp í kletta við Svörtuloft. Áhöfn á þyrlu bandaríska varnarliðsins á Keflavíkurflugvelli náði að bjarga einum manni af stýrishúsi bátsins við erfiðar aðstæður. Þrír létust.
Hallgrímur SI var á siglingu djúpt út af Noregi á leið til Álasunds þegar skipið sökk í janúar 2012. Fárviðri var á þessum slóðum og ölduhæð um 10 til 15 metrar. Mikill leki kom að skipinu sem byrjaði að halla og sökk á skömmum tíma. Fjórir voru í áhöfn skipsins sem átti að flytja það til nýrra eigenda í Noregi. Norsk björgunarþyrla fann einn sjómanninn í miklum öldugangi. Hinir þrír fórust.