Musk vill setja fjölda gervihnatta sem eiga að vera gagnaver á braut um jörðu, til viðbótar við þúsundir Starlink-gervihnatta sem eru þar þegar. Gagnaverin eiga að kallast „Starmind“.
Musk hefur um nokkurt skeið talað um að koma fjölda gagnavera, sem eiga að vera knúin með sólarorku, á braut um jörðu. Vísindamenn og sérfræðingar hafa ítrekað dregið í efa að slíkt sé framkvæmanlegt, án gífurlegrar fyrirhafnar og kostnaðar. Þá gæti slíkt haft slæmar afleiðingar fyrir umhverfið.
Eins og segir í grein Ars Technica höfðu forsvarsmenn þó nokkurra samtaka lýst yfir áhyggjum af þessari leyfisveitingu á grunni umhverfisáhrifa og vegna þess hvað svo mikill fjöldi gervihnatta auki hættuna á árekstrum og meðfylgjandi geimbraki á sporbraut. Þar að auki lýstu vísindamenn yfir áhyggjum vegna þess hve mikil og slæm áhrif gervihnettirnir myndu hafa á vísindarannsóknir.
Sjá einnig: Umdeildur gervihnöttur orðinn eitt bjartasta fyrirbærið á næturhimninum
Fjarskiptastofnun Bandaríkjanna (FCC) gefur lítið fyrir þessar áhyggjur. Í yfirlýsingu frá stofnuninni er haft eftir Brendan Carr, yfirmanni hennar, að ákvörðunin geri Bandaríkjamönnum kleift að byggja upp þá reiknigetu og innviði sem Bandaríkin þurfi til að halda yfirráðum sínum hvað varðar „ofurgreind“ eins og Trump hefur skikkað embættismenn sína og aðra til að kalla gervigreind.
Höfnuðu kröfum um rannsóknir
Stofnunin hafnaði kröfum um rannsóknir á mögulegum umhverfisáhrifum þessa en meðal annars myndu fjölmargir gervihnettir vera látnir brenna upp í gufuhvolfinu og sá gífurlegi fjöldi geimskota sem til þarf myndi valda töluverðri mengun. FCC segir að ekkert bendi til þess að slíkt myndi hafa áhrif á andrúmsloftið.
Samtök stjarnfræðinga í Bandaríkjunum hafa lýst yfir miklum vonbrigðum með ákvörðun FCC.
FCC segir að SpaceX verði að koma að minnsta kosti einu gagnaveri á braut um jörðu fyrir 2033 og gæti bætt fleirum við, eða allt að milljón, til ársins 2040.
Elon Musk, eigandi SpaceX, er pólitískur bandamaður Donalds Trump, forseta Bandaríkjanna. Hann þakkaði Carr fyrir ákvörðunina á X og sagði að hún myndi reynast Bandaríkjunum og heiminum öllum hagkvæm.
@BrendanCarrFCC Much appreciated. This will be a great asset to America and the world.
— Elon Musk (@elonmusk) November 25, 2026
Erfitt í framkvæmd eða draumórar?
Þeir sem styðja vangaveltur um fjölda gagnavera á sporbraut segja að þannig megi draga úr auknu álagi á orkukerfi jarðarinnar vegna gervigreindaruppbyggingarinnar, sem hefur reynst óvinsæl meðal kjósenda víða um heim og spilaði nokkuð stóra rullu í því afhroði sem Repúblikanar hlutu í þingkosningunum í upphafi mánaðarins.
Því hefur einnig verið haldið fram að þannig megi draga úr notkun á vatni, sem er notað til að kæla gagnaver víða um heim, þar sem geimurinn sé kaldur.
Geimurinn er þó ekki heppilegur staður fyrir rafbúnað af þessu tagi, þar sem tómarúm er lélegur hitaleiðari og tekur illa við hita og kælir illa. Hiti getur eingöngu losnað með útgeislun, sem er mun óskilvirkari en vatnskæling eða loftkæling.
Um borð í Alþjóðlegu geimstöðinni er komist hjá þessu með því að nota sérstakt kælikerfi, þar sem vatn og ammóníak er notað til að flytja hitann frá tækjum geimstöðvarinnar og geimförum út í geiminn. Það er gert með stærðarinnar kælum þar sem mikið yfirborð þarf til að geisla hitanum frá geimstöðinni.
Adam Becker, stjarneðlisfræðingur og rithöfundur, sagði í samtali við AP-fréttaveituna að ætlanir Musks væru draumórar.
Remember: space is a vacuum. Vacuum is an insulator, it's what makes a thermos work. Putting a data center into space is like putting it into a thermos. Cooling a data center in space would be much harder than on Earth. Anyone who implies otherwise, like Elon Musk, is ignorant, a grifter, or both.
— Adam Becker (@adambecker.bsky.social) 26 November 2026 at 05:41
Starfsmenn SpaceX hafa á undanförnum árum þróað endurnýtanlegar eldflaugar sem hefur gert fyrirtækinu kleift að senda farm, eins og gervihnetti, á braut um jörðu með töluvert minni tilkostnaði en önnur fyrirtæki. Þá hafa eldflaugarnar reynst mjög áreiðanlegar.
Með þeim hefur SpaceX komið þúsundum Starlink-gervihnatta á braut um jörðu. Fyrirtækið er nú með rúmlega ellefu þúsund virka slíka gervihnetti sem notaðir eru til að veita fólki aðgang að internetinu nánast hvar sem er í heiminum.