Þetta er samstarfsverkefni UMFÍ og ÍSÍ og verða niðurstöður skýrslunnar kynntar í dag, fimmtudaginn 26. nóvember kl. 16:00 í Íþróttamiðstöðinni í Laugardal. Halla Tómasdóttir, forseti Íslands, hefur boðað komu sína á fundinn og von er á fjölda annarra gesta.
Í tilkynningu segir að skýrslan byggi á átta samráðsfundum sem haldnir voru víða um land vorið 2026. Þar settust ungmenni niður með fulltrúum íþróttahreyfingarinnar, sveitarfélaga, skóla og stjórnvalda og ræddu um íþróttastarf frá ýmsum hliðum. Verkefnið var styrkt af Erasmus+.
Á meðal annars efnis í skýrslunni sem er ungu fólki ofarlega í huga:
- Leiðir til að sporna gegn brottfalli úr skipulögðu íþrótta- og æskulýðsstarfi.
- Leiðir til að gera íþróttastarf aðgengilegra og fjölbreyttara.
- Hvernig íþróttastarf getur svarað betur þörfum og væntingum ungs fólks.
- Hvað þarf að breytast.
Hvenær: Fimmtudaginn 26. nóvember 2026 kl. 16:00–17:30.
Hvar: Íþróttamiðstöðin í Laugardal, Engjavegur 6, 3. hæð, 104 Reykjavík.
Á dagskrá er:
- Helstu niðurstöður skýrslunnar
- Samtal við ungmenni sem tóku þátt í verkefninu
- Ólafur Stefánsson handboltakappi segir frá upplifun sinni af verkefninu, en hann tók virkan þátt í öllum fundum.
- Pallborð með fulltrúum ungs fólks, íþróttahreyfingarinnar, sveitarfélaga og stjórnvalda um spurninguna: Hvað ætlum við að gera við það sem unga fólkið hefur sagt okkur?