Enn er á huldu hvað olli því að skipið byrjaði að leka sem varð til þess að skipstjórinn á Jökli sendi neyðarboð til stjórnstöðvar Landhelgisgæslunnar laust eftir klukkan 17 í gær. Málið er til rannsóknar hjá lögreglu og rannsóknarnefnd samgönguslysa.
Neyðarboðið barst rétt upp úr klukkan 17 sem varð til þess að varðstjórar Landhelgisgæslunnar báðu áhöfn skipsins um að klæðast björgunargöllum. Aðeins liðu um tíu mínútur þar til skipstjórinn lýsti yfir neyðarástandi og upplýsti að skipverjar væru að yfirgefa skipið.
Hvað olli því að skipið sökk svo hratt eftir að lekinn kom upp liggur ekki fyrir. Þó má fullyrða að lekinn hafi verið verulegur fyrst að atburðirnir gerðust á svo skömmum tíma.
Skipverjarnir voru 17, sextán karlar og ein kona. Þeir voru á öllum aldri og var átján ára karlmaður á meðal þeirra sem komst lífs af. Einn hinna látnu er frá Húsavík og annar er pólskur.
Athygli vekur að Jökull hefur frá því að skipið var keypt til GPG Seafood árið 2021 lent í sex óhöppum. Rannsóknarnefnd samgönguslysa hefur rannsakað þrjú þeirra. Ekki hefur náðst í framkvæmdastjóra útgerðarinnar það sem af er degi.