Í tilkynningu á vef Alþingis þess efnis segir að fundurinn hefjist klukkan 9 í Smiðju, Tjarnargötu 9. Fundurinn verði opinn fulltrúum fjölmiðla og almenningi á meðan húsrúm leyfir. Bein útsending verði frá fundinum á vef Alþingis og á sjónvarpsrás Alþingis.
Gestur fundarins verði Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra. Hann hefur sætt talsverðri gagnrýni undanfarið eftir að Hörður Arnarson sagði starfi sínu sem forstjóri Landsvirkjunar lausu.
Stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd ákvað í byrjun mánaðar að óska eftir öllum gögnum í tengslum við málið og taka öll samskipti fjármálaráðherra og Landsvirkjunar til skoðunar.
Sakaður um pólitísk afskipti
Ingveldur Anna Sigurðardóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins og annar varaformaður nefndarinnar, sagði þá í samtali við fréttastofu að sagan væri ekki öll sögð í málinu og sakaði ráðherrann um pólitísk afskipti.
„Það sem auðvitað liggur fyrir er að það lá fyrir minnisblað Harðar síðan í júní og svo kemur ráðherra fram þann í október þegar Guðlaugur Þór spyr hann út í afsögn Harðar að þá segir hann að sagan sé öll sögð en þá lá alveg fyrir í gögnum málsins sem við höfum fengið núna að sagan var ekkert öll sögð. Þarna voru óeðlileg pólitísk afskipti af Landsvirkjun sem er náttúrulega stranglega bannað. Þetta er eitt af okkar allra verðmætustu fyrirtækjum landsins þannig að við þurfum að halda ákveðinni armslengd þarna á milli og miðað við allavega það sem kemur fram í minnisblaði Harðar þá er vert að skoða þetta og þær athugasemdir sem hann setur þar fram,“ sagði hún.
Fagnar skoðun
Daði Már sagðist fagna því að nefndin hyggðist taka málið til skoðunar.
„Jú, ég fagna þessu mjög. Það er mjög mikilvægt að það ríki traust, ekki bara um Landsvirkjun heldur almennt um það hvernig fjármála- og efnahagsráðuneytið hagar sér sem eigandi og þess vegna held ég að það sé mjög mikilvægt að þetta fari í ferli þar sem einfaldlega öllum spurningum er svarað.“
Að hans mati væri ekkert ósagt í málinu. Skýrar reglur væru um það hvernig ríkið eigi að haga sér sem eigandi Landsvirkjunar og farið hefði verið eftir þeim.