Aðeins tólf mínútur liðu frá því að neyðarboð um leka barst frá skipstjóranum þangað til hann tilkynnti að skipið væri á leiðinni niður og skipverjar væru að yfirgefa það.
Sigurður Helgi Ólafsson er útgerðarstjóri hjá GPG Seafood.
„Þú ert ekki einn um það,“ segir Sigurður Helgi um vangaveltur blaðamanns um hvað olli því að skipið byrjaði að leka og sökk.
„Ég er að komast að því núna hvar allir mennirnir eru niður komnir.“
Sex skipverjar flugu til Reykjavíkur í nótt að því er fram kom í máli forstjóra Landhelgisgæslunnar á blaðamannafundi í morgun. Þrír létust, einn fullorðinn karlmaður frá Húsavík og karlmaður frá Póllandi. Vísir hefur ekki upplýsingar um þann þriðja.
Sigurður Helgi segist ekki hafa heyrt neinar frásagnir skipverja eða vera meðvitaður um hvað gæti hafa gerst í skipinu.
„Ég er að einbeita mér að áhöfninni sjálfri.“
Sex óhöpp hafa komið upp hjá Jökli ÞH undanfarin fimm ár. Aðspurður hvort útgerðin hafi verið meðvituð um einhvern veikleika á skipinu sem gæti hafa valdið lekanum svarar Sigurður Helgi:
„Nei, ekkert svoleiðis.“
Skömmu eftir að blaðamaður ræddi við Sigurð Helga greindi Landhelgisgæslan frá því að Kristinn Hrannar Hjaltason, skipstjóri á Jökli, hefði tilkynnt stjórnstöð Gæslunnar að lúga væri brotin að aftan og leki kominn að skipinu. Nítján mínútum síðar var skipið sokkið.