Patrícia Mikulová birti í dag færslu á ensku á Facebook þar sem hún þakkar björgunarfólki og vottar samúð sína með fjölskyldum þeirra sem fórust þegar fiskiskipið Jökull ÞH 299 sökk í gærkvöld. Hún er eiginkona Kristins Hrannars Hjaltasonar, skipstjóra Jökuls. Þrír skipverjar fórust í slysinu og fjórtán var bjargað á lífi, eins og Nútíminn greindi frá í morgun.
Í færslunni skrifar Patrícia að maðurinn hennar hafi verið skipstjóri skipsins. „Í dag er ég innilega þakklát fyrir að hafa hann heima hjá mér og börnunum okkar, og hjartasár vegna fjölskyldna þeirra sem munu ekki koma heim,“ skrifar hún. Í samtali við DV segir hún að Kristni líði eins vel líkamlega og hægt sé að gera ráð fyrir við þessar aðstæður.
Hún þakkar Landhelgisgæslu Íslands, áhöfnum þyrlna og flugvéla, björgunarsveitum Landsbjargar, áhöfnum skipanna sem komu til aðstoðar og öllum sem komu að björguninni, auk heilbrigðisstarfsfólks og allra sem hlúðu að áhöfninni þegar komið var á land. „Hugrekki ykkar, fórnfýsi og umhyggja skiptir fjölskyldu okkar meira máli en orð geta nokkurn tíma lýst,“ skrifar hún. „Að geta haldið utan um manninn minn aftur, og að börnin okkar geti faðmað pabba sinn, er eitthvað sem ég mun aldrei taka sem sjálfsögðum hlut.“
Til fjölskyldna og ástvina þeirra sem létust vottar hún dýpstu samúð. „Ég veit að engin orð geta létt ykkar missi. Vitið að þið og ykkar ástvinir eruð í hjörtum okkar, á meðan við höldum okkar eigin fjölskyldu nálægt,“ skrifar hún. Hún lýkur færslunni með orðunum: „Litla brotna hjartað mitt er með ykkur öllum.“