„Ég og mín áhöfn mættum á Egilsstaði eftir ýmsum leiðum og höfðum ekki þyrlu til að gera nokkurn skapaðan hlut. Það var ákveðið hjá Landhelgisgæslunni að hafa aðra áhöfn vegna þess að þetta er erfitt verkefni og alveg verulega miklar líkur á því að sigmennirnir og aðrir í áhöfninni örmagnist af þessu,“ segir Sigurður Ásgeirsson, þyrluflugmaður hjá Landhelgisgæslunni, sem ræddi sjóslys sem átti sér stað í gærkvöldi í Reykjavík síðdegis.
„Svo eins og þetta leit út þá var ekki ólíklegt að það myndi fylgja þessu leit alla nóttina.“
Sigurður birti færslu á Facebook fyrr í dag þar sem hann gagnrýndi harðlega öryggismál. Hann sjálfur hafi verið í varasveit Landhelgisgæslunnar sem sat og beið á Egilsstaðaflugvelli. Þar tekur Sigurður fram að hefði verið önnur þyrla til taks hefði verið hægt að stytta viðbragðstímann og tryggja öryggi.
Fyrsta neyðarkall barst rétt eftir klukkan fimm og var TF-SIF, flugvél Landhelgisgæslunnar, komin á vettvang rétt eftir klukkan átta. Þyrlan TF-GRÓ var komin á vettvang klukkan 21:21.
„Þyrlurnar í þessu tilfelli voru á vitlausum helmingi landsins. Það er búið að benda margoft öllum sem koma að þessum björgunarmálum á að það er galið að það séu ekki þyrlur á fleiri stöðum en í Reykjavík,“ segir hann.
Vegna veðurs var nauðsynlegt að fljúga þyrlunni meðfram ströndinni auk þess að stoppa þurfti á Höfn í Hornafirði til að taka eldsneyti. Sigurður telur það eðlilegast að önnur þyrla og þyrlusveit verði til taks á Norðurlandi.
„Náttúrulega ef þyrlan hefði verið staðsett á Egilsstöðum hefði það munað öllu. Þá erum við að tala um viðbragð upp á klukkutíma.“
Algjör heppni
Í tæp tíu ár hafi allar þyrlur Landhelgisgæslunnar verið leiguvélar og eru þær þrjár talsins í dag. Að sögn Sigurðar er um flókinn búnað að ræða sem þurfi mikið viðhald. Ef hinar tvær þyrlurnar hefðu ekki verið í viðgerð hefði þeim báðum verið flogið á vettvang.
„Það getur ýmislegt komið upp á með þyrluna. Það sem er stóra málið er að sigmaðurinn okkar sem fer niður, hann getur mjög fljótt örmagnast í þessum aðstæðum,“ segir hann.
Veiðarfæri og línur hafi verið úti um allt auk mikillar ölduhæðar. Lendi sigmaðurinn í vandræðum hafi þyrlan enga aðra kosti en að klippa hann frá sér. Sigurður segir að þá sé grundvallaratriði að önnur þyrla sé á staðnum.
„Það er ótrúlegt lán að þetta skuli hafa gengið upp. Það er ótrúleg heppni að það hafi verið nægt eldsneyti til að ná öllum þessum mönnum upp um borð og það er þvílíkt lán að það er varla hægt að hafa orð yfir það.“
Ráðstöfunin pirri
Starfsmenn Landhelgisgæslunnar og aðrir sem starfa við slíkar björgunaraðgerðir séu orðnir þreyttir á stöðunni. Þau ræði það ítrekað á kaffistofunni en starfsmenn hafi almennt verið hræddir við að stíga fram og gagnrýna stöðuna opinberlega.
„Auðvitað verður aldrei til peningur til að eyða í endalaust af þyrlum og búnaði, það vitum við. Eins og Georg [Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslunnar] hefur bent á, skemmtiferðaskip, við hefðum aldrei getað undirbúið okkur fyrir þannig stórslys. Það er alveg ljóst,“ segir Sigurður.
Hann hafi skilning á því að allir þurfi peninga og nefnir heilbrigðiskerfið og vegagerð. Þá sé ekki til endalaust af þeim. Hver þyrla kostar um fjóra milljarða.
„En ef ég tala á persónulegu nótunum þá pirrar það mig hvernig þessu var ráðstafað.“