Fyrir rúmum þremur vikum samþykkti borgarstjórn að hækka staka miðann um 40 krónur um áramótin. Meirihluti Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Framsóknar lagði til á fundi borgarráðs í dag að hækkunin yrði 600 krónur og tæki gildi fyrir jól. Sama verð myndi gilda fyrir fullorðna sem kaupa stakan aðgang að aðstöðunni á Ylströndinni í Nauthólsvík. Borgarráð vísaði tillögunni um gjaldskrárbreytingarnar til borgarstjórnar þar sem síðari umræða um fjárhagsáætlun fer fram 1. desember.
Vill sækja auknar tekjur til ferðamanna
Bjarni Guðjónsson, formaður íþrótta- og útilífsráðs Reykjavíkur, segir að hækkunin myndi fyrst og fremst ná til ferðamanna. Langflestir borgarbúar sem sæki laugarnar séu með sundkort.
„Við erum að leggja til að hækka staka gjaldið í sund sem oft gengur undir heitinu „túristagjaldið“ en langflestir af okkar íbúum sem sækja sundstaðina heim eru með sundkort og þessi breyting mun því ekki hafa áhrif á þann hóp. Við getum hins vegar sótt auknar tekjur til þeirra sem koma aðeins stakt skipti í sund, sem í flestum tilfellum eru ferðamenn. Einnig má benda á að nú er hægt að fá greiðsludreifingu á árskortin okkar.“
Bjarni segir umfangsmikið viðhald fram undan í laugum borgarinnar.
„Til fróðleiks kostar hver sundferð borgina meira en 2.000 kr. og því er um niðurgreidda þjónustu að ræða. Við teljum það auðvitað ekki eftir okkur enda leggjum við ríka áherslu á sundlaugarnar. Við þurfum hins vegar að ráðast í umfangsmikið viðhald á næstu árum og viljum áfram að fólk á öllum aldri geti notið þeirra lífsgæða að hafa aðgang að laugunum sem eru orðnar ríkur partur af okkar menningu. Í sumar ákváðum við einnig að lengja opnunartíma sundlauganna og nú eru laugar borgarinnar almennt opnar til 22 alla daga. Við hvetjum bara fólk til að skella sér í sund. Það hressir, bætir og kætir!“
Í bókun sinni um fjárhagsáætlun í dag sögðu meirihlutaflokkarnir að með breytingunum vildu þeir draga úr kostnaði við stjórnsýslu borgarinnar og verja meira fé til grunnþjónustu. Stýrihópur um gjaldskrár hafi lagt til að hækka verð á stökum miða í áföngum til að færa það nær kostnaði borgarinnar við hverja heimsókn. Fastagestir gætu áfram keypt árskort eða greitt mánaðarlega áskrift.
Kristinn Jón Ólafsson, sem sat í stýrihópi borgarinnar um gjaldskrár, sagði í aðsendri grein á Vísi í apríl að raunkostnaður við hverja sundferð væri um 2.150 krónur. Reykvískir skattgreiðendur greiddu því á þeim tíma meira en 700 krónur með hverjum stökum miða sem ferðamenn keyptu.
Breytingin skili 67 milljónum
Borgin áætlar að þessar gjaldskrárbreytingar muni skila samtals 67 milljónum króna í auknar tekjur. Sú tala nær til sundlauganna, Ylstrandarinnar og menningarkorts eldri borgara. Lagt er til að eldra fólk greiði 4.000 króna árgjald fyrir menningarkortið en í dag kostar kortið 2.550 krónur og endurnýjun er gjaldfrjáls.
Tíu miða kort í sund kostar nú 7.000 krónur en hækkar í 7.200 krónur um áramótin. Hver ferð kostar þá 720 krónur með kortinu.
Þann 5. maí lækkaði árskort fullorðinna úr 48.000 krónum í 34.000 krónur. Þá bauð borgin í fyrsta sinn upp á mánaðaráskrift með tólf mánaða bindingu á 2.833 krónur á mánuði. Samkvæmt gjaldskránni sem tekur gildi 1. janúar 2027 hækkar mánaðargjaldið í 2.950 krónur og árskortið í 34.850 krónur. Þriggja mánaða kort er ekki í boði.