„Eftir harmleik gærkvöldsins um borð í Jökli ÞH er erfitt að finna orð yfir allt sem ég finn fyrir,“ skrifar Patrícia Mikulová í færslu á Facebook en eiginmaður hennar, Kristinn Hrannar Hjaltason, var skipstjóri á Jökli ÞH 299 sem sökk á sjötta tímanum síðdegis í gær.
Þakkar öllum sem komu að verkinu
Myndband sem fór í dreifingu á samfélagsmiðlum strax snemma í gærkvöldi sýnir hann tilkynna Patríciu að skipið sé að sökkva og heyrist segja „ég elska þig ástin mín, við erum að sökkva“ á ensku.
„Í dag er ég innilega þakklát fyrir að hafa hann heima hjá mér og börnunum okkar og með sorg í hjarta fyrir fjölskyldurnar þar sem ástvinir munu ekki koma heim,“ skrifar eiginkona hans einnig í færslunni og bætir við að hún vilji þakka öllum þeim sem komu að björgunaraðgerðunum kærlega fyrir þeirra framtak.
„Frá hjartarótum, þakkir til Landhelgisgæslu Íslands, þyrlu- og flugvélaáhafna, björgunarsveita Landsbjargar, áhafna skipanna sem komu til aðstoðar og allra fyrir að samræma björgunina. Þakkir til sjúkraliða og allra sem hlúðu að áhöfninni þegar komið var á land. Hugrekki þitt, dugnaður og umhyggja skipta fjölskyldu okkar meira máli en orð geta nokkurn tíma lýst,“ skrifar hún í færslunni.
„Litla brotna hjartað mitt“
Það að geta haldið utan um manninn sinn og að börnin hennar geti faðmað pabba sinn sé eitthvað sem hún muni aldrei taka sem sjálfsögðum hlut. Hún vottar einnig fjölskyldum og ástvinum þeirra sem létu lífið sína dýpstu samúð.
„Ég veit að engin orð geta létt á missi ykkar. Vitið að þú og þínir ástvinir eruð í hjörtum okkar þar sem við höldum okkar eigin fjölskyldu nálægt,“ skrifar hún.
Það sé úr of miklu að vinna í augnablikinu og „litla brotna hjartað mitt er með ykkur öllum“.