Allt stefnir í að Spánverji taki við stöðu bankastjóra Seðlabanka Evrópu í febrúar á næsta ári. Þá lætur Christine Lagarde af störfum. Hún hefur stýrt bankanum síðan 2019. AFP fréttaveitan hefur eftir ónefndum diplómötum innan Evrópusambandsins að Hernandez de Cos taki við af henni.
Forsætisráðherra Spánar, Pedro Sanchez, fagnar tíðindunum á samfélagsmiðlum og segir að skipunin eigi eftir að endurspegla að Spánn sé meira leiðandi afl í Evrópu en nokkurn tíma áður. De Cos er 55 ára hagfræðingur og stýrði áður Seðlabanka Spánar.
Efnahagsráðherra Spánar lýsir honum sem stöðugum leiðtoga sem eigi auðvelt með að ná fram samstöðu.