Tilefni ferðalagsins var sextugsafmæli Björns Ólafssonar, fjárfestisi og mágs Björns Thors, og var fjölmennur hópur Íslendinga með í för. Meðal ferðalanga voru athafnamennirnir Björgólfur Thor Björgólfsson og Davíð Másson. Unnur sagði frá ferðalaginu í samfélagsmiðlafærslu fyrr í dag.
„Framandi, ævintýralegt, spennandi, stórkostlegt, áskorun sem sprengir alla þægindaramma lífsins. Ég náði 4600m hæð en veiktist þá af hæðaveiki og þurfti að fara niður. Bjössi náði toppnum,“ skrifar Unnur.
„Ber mikla virðingu fyrir fjallafólki eftir þetta,“ skrifar hún og bætir við að nokkrir Everestfarar hafi verið með í för.
„Þetta er eitt það erfiðasta sem ég hef nokkurn tímann gert. Á fjalli kynnist maður kjarna fólks, í þunnu loftinu. Mætum náttúrunni saman. Allar varnir bresta. Það er stutt á milli okkar. Maður mætir sjálfum sér. Erfiðar, efast, upplifir, hræðist,“ skrifar Unnur.
„En þegar himnarnir opnast á kvöldin, stjörnurnar brjótast fram og aparnir syngja í regnskógunum hoppandi yfir tjöldunum okkar- er þetta allt þess virði. Það var soldið grátið, meira hlegið. Stolt, þakklát, meyr, þreytt, hissa, allt önnur,“ skrifar hún.
„Umbreytandi lífsreynsla með yndislegu fólki.“