„Við erum nokkuð brött, en samt lúin,“ segir Jens, flugsjtóri hjá Landhelgisgæslunni, í samtali við fjölmiðla í dag, spurður hver staðan sé á þyrluáhöfn og björgunarsveitum.
Engu að síður séu tilfinningarnar blendnar þar sem þrír sjómenn létust. „En það er eins og það er,“ bætir hann við.
Hann sé engu að síður ánægðastur með að allir 17 hafi á endanum skilað sér í vélina.
„Aðstæður voru töluvert krefjandi. Framan af þegar eftirlitsflugvélin TF-Sif kemur á staðinn eru þokubakkar í grennd og frekar takmarkaðar upplýsingar,“ segir hann er hann lýsir vettvangi.
Síðan hafi tekið að birta sem hafi bæði gert áhöfn TF-SIF og áhöfnum fiskiskipa, sem einnig var stefnt að vettvangi, auðveldara fyrir að sjá.
Jens segir að aðstoð frá fiskiskipum í grenndinni hafi skipt sköpum við að „teikna upp stóru myndina af slysstaðnum“.
„Svo breytti öllu að viðkomandi [þ.e. sjómenn í bátnum sem sökk] vissu hvað þeir áttu að gera í þessum aðstæðum,“ bætir hann við.
Aðeins ein þyrla, TF-GRÓ, af þremur þyrlum gæslunnar var tiltæk þegar útkallið barst og var hún í Reykjavík. Það tók því nokkra stund að koma henni á vettvang.
Jens segir það „alveg kýrskýrt að við þurfum fimm vélar af þessari stærðargráðu til að halda tveimur [þyrlum] úti“.
Tvær vélar hefðu breytt töluvert í tíma við þetta verkefni, segir hann.
Fram hefur komið að Landhelgisgæslan hafi þurft að víkja frá verklagi við aðgerðina. Þyrlan á samkvæmt verklagi ekki að fara lengra en 20 sjómílur frá landi en hér var henni flogið um 60 sjómílur út á sjó.
Jafnframt var mikill vindur á vettvangi, að sögn Jens, um 25 til 30 hnútar. Vindurinn hafi verið stöðugur og ekki skapað teljandi vandræði en gert verkefnið meira krefjandi engu að síður.
„Þetta eru skelfilegar aðstæður sem við erum sett í sem áhöfn,“ segir hann, „að þurfa að taka svona ákvörðun.“
Vindurinn hafi verið stöðugur og ekki skapað teljandi vandræði en gert verkefnið meira krefjandi.
„Menn eru einfaldlega að fjúka undan vélinni,“ segir hann.
„Þetta var alls ekkert auðveld ákvörðun, við höfum ákveðið verklag og fylgjum því í einu þar til neyðin brýtur lög og þá tekur maður þetta samtal bæði við sína áhöfn og yfirmenn,“ segir hann. „Jú, vissulega. Þetta eru ömurlegar aðstæður fyrir okkur sem áhöfn.“
Óttaðist þú einhvern tímann um öryggi þitt eða áhafnarmeðlima?
„Nei, ég gerði það nú ekki. Ég treysti okkur 100 prósent fyrir þessu verkefni. Verkefnið var kannski af þeim skala að ég þurfti að breyta til. Eins og þú nefndir áðan, að brjóta af – brenna eldsneyti – til að létta vélina um einhver 140 sem gerði það að verkum að við gátum híft síðustu fjóra menn upp.“
„Það var ekki auðvelt að biðja skipið að slíta tengingu við sex manns, úti á ballarhafi. Eftir á að hyggja er það svolítið, ef ég má sletta, bold ákvörðun að biðja skipstjórann að slíta og svo tek ég upp fjóra og fer frá, skil mjög mikið af fólki eftir í sjónum, brenni eldsneyti og kem svo inn aftur. En til allrar guðs lukku þá tókst þetta.“
Þetta séu aðstæður sem engan veginn sé hægt að undirbúa sig 100% fyrir.
„Krakkarnir eiga hrós skilið,“ segir hann.
„Þetta er ekki eitthvað sem við gerum öllu jöfnu en þetta gekk vel og við vorum mjög vel stefnd og á einu máli allan tímann.“