Uppslátturinn í erlendum fréttum er flestur á sama veg. Þrír látnir þegar skip sökk við Íslandsstrendur.
Norski miðillinn VG fjallaði til að mynda um málið. Þar segir fyrirsögnin: „Þrír létust þegar að fiskibátur sökk við Ísland“. Vísað er í tilkynningu frá Landhelgisgæslunni og frétt mbl.is.
Sænska dagblaðið Aftonbladet fjallar sömuleiðis um málið. Þar er vísað í orð Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra á blaðamannafundi í morgun: „I en sorgens stund som denna står vi alla enade“. Er haft eftir forsætisráðherranum.
Færeyski miðillinn Kringvarpið setur í fyrirsögn að áhöfn þyrlunnar hafi brotið reglur til að bjarga íslenskum sjómönnum.
Finnski miðillinn Yle segir að minnst þrír séu látnir. Þeir vísa í Ríkisútvarpið.
RMF24 frá Póllandi staðfesti í frétt um málið að pólskur maður væri meðal þeirra látnu.
Franska fréttaveitan AP fjallaði um málið og greindi meðal annars frá því að einn hinna látnu væri frá Póllandi.
Franski miðillinn le Figaro fjallar einnig um málið og vísar í AFP.
Breski miðillinn crewboard.net birti umfjöllun um málið og tekur fram að sjómennirnir hafi verið bundnir saman út á sjó klukkustundum saman. Miðillinn vísar í Vísi.
Fleiri miðlar hafa einnig fjallað um málið.