Áhöfnin á Jökli PH sem sökk um hundrað kílómetra austur af Glettingi síðdegis í gær var skipuð sextán karlmönnum og einni konu. Þrír létust og fjórtán var bjargað. Eftirlits- og björgunarflugvélin TF-SIF var fyrst á vettvang en þyrlan TF-GRÓ hafði ekki getað flogið yfir hálendið vegna aðstæðna og lenti á Hornafirði til að fylla á eldsneytisbirgðir.
Viðtalið við Brynhildi Ástu Bjartmarz flugmann TF-GRÓ er hægt að sjá hér fyrir neðan.
Vottar aðstandendum samúð sína
Brynhildur Ásta Bjartmarz flugmaður lýsir því að hún hafi verið á leið í matvöruverslun þegar henni barst útkall á fyrsta forgangi og brunaði þá á flugvöll Reykjavíkur. Hún var meðal þeirra sex sem voru í áhöfninni um borð í TF-GRÓ í gær við björgunina.
Hún hefur viðtal við blaðamann fréttastofu á því að votta aðstandendum sínar innilegustu samúðarkveðjur.
Svo lýsir hún því hvernig upplýsingar fóru að berast um leið og hún og hinir í áhöfninni lögðu af stað frá Reykjavík. Þá var vitað að sautján manns væru í sjónum og að það yrðu erfiðar veðurskilyrði á leiðinni og á vettvangi. Því var flogið meðfram ströndinni, tekið eldsneytisstopp á Höfn í Hornafirði og þaðan á vettvang.
„Á leiðinni voru mjög miklar umræður um hvernig við ætlum að gera hlutina á vettvangi og um aðstæður þar,“ segir hún og útskýrir að þau hafi miðað við staðsetningarnar frá flugvélinni TF-SIF og flogið beint að fyrsta hópnum.
„Þar eru ellefu manns saman í hóp, mjög mikill léttir að sjá fólkið og að þau séu saman,“ segir hún og að þau hafi þá hafist strax handa við að hífa skipverjana upp einn af öðrum. Á meðan fann skip hinn hópinn en þar voru sex saman í línu.
Töldu hausa ítrekað
„Klárum að hífa þau upp og svo beint í að hífa upp seinni hópinn, þá er orðið mjög takmarkað afl í vélinni,“ segir hún en það þurfti að hækka flugið og létta hana en á meðan voru tveir eftir í sjónum.
„Ég veit ekki hversu oft við töldum hausana um borð til að vera viss um að við værum með alla um borð,“ segir hún og bætir við að það hafi verið í algjörum forgangi að vinna hratt og vel, finna alla og koma öllum um borð í þyrluna.
Hvernig er tilfinningin eftir þetta allt saman?
„Blendnar tilfinningar svo ég segi satt frá,“ segir hún og ítrekar að það hafi svo margir komið að og allir „staðið algjörlega sína plikt“.
Fólkið sem var í sjónum sé hetjurnar í þessu, ekki hún þó að hún dáist líka að samstarfsfólkinu sínu. Skipverjarnir hafi verið „ótrúlega brattir miðað við aðstæðurnar sem þeir voru í“.
Ekki tími fyrir ergelsi
Líkt og hefur komið fram voru veðurskilyrði virkilega strembnar og þurfti þyrlusveitin að taka aukakrók til þess að brenna eldsneyti og létta vélina.
„Maður hugsar bara um hvernig maður getur leyst verkefnið, við þjálfum og æfum undir alls konar aðstæðum og það er það sem maður fellur á í svona verkefnum,“ segir Brynhildur og ítrekar: „Það er ekkert annað í boði en að leysa verkefnið og gefst ekki mikill tími fyrir ergelsi en eftir á spilar maður í gegnum allt og hugsar hvað hefði verið hægt að gera betur.“
Þyrlan fór 60 mílur út en mátti aðeins fara 20 og því liggur fyrir að þyrlusveitin braut reglur og lagði sig í hættu. Tvær af þremur þyrlum Landhelgisgæslunnar voru óflughæfar í gær þegar neyðarkallið kom frá Jökli. Staðsetning þyrlu á Akureyrarflugvelli hefði stytt flugtíma þyrlu á slysstaðinn verulega.
„Það var tekið samtal um hvort við ætluðum að brjóta þessar reglur en aldrei neinn vafi,“ segir Brynhildur og að öll sex hafi þurft að vera sammála um að halda í þetta verk. Þó hafi hún aldrei óttast um líf sitt og haft óbilandi trú á áhöfninni. Ásamt Brynhildi í áhöfn TF-GRÓ um borð við björgunina voru Jens Sigurðarson flugstjóri, Helgi Guðnason stýrimaður, Bergur Stefánsson læknir, Elvar Már Sigurðsson stýrimaður og Jón Tómas Vilhjálmsson flugvirki.
Þurfi að bæta við þyrlu
Skipstjóri á Jökli lýsti yfir neyðarástandi upp úr klukkan fimm síðdegis í gær. Varðstjórar í stjórnstöð Landhelgisgæslunnar báðu áhöfn að klæða sig í björgunargalla og skipstjóri tilkynnti stjórnstöð í framhaldinu að skipverjar væru að yfirgefa skipið.
Björgunaraðgerðir á slysstað voru umfangsmiklar og stóðu í um tvo klukkutíma. Þá höfðu skipverjar verið nokkrar klukkustundir í köldum sjó. Þyrlan með sautján skipverja lenti á Egilsstaðaflugvelli laust fyrir miðnætti.
Á blaðamannafundi í morgun var Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra spurð út í sjópróf og framlög til Landhelgisgæslunnar. Hún sagði að frá því að ríkisstjórn hennar tók við hafi fjárheimilir farið upp um 35 prósent að raunvirði. Það sé innviðaskuld hjá Landhelgisgæslunni og rekstur þungur vegna til dæmis eldsneytisverðs.
Það sé vitað að það sé áskorun að takast á við reksturinn en hann hafi gengið vel og þau staðið við allar sínar skyldur. Hún fullyrðir að þó svo að allir hefðu viljað vera í öðrum aðstæðum í gær sýni þetta afrek að gæslan kunni til verka og að nýta sinn búnað vel.
Einni sagði hún það í alvarlegri skoðun að bæta við þyrlu og að þeirri skoðun verði flýtt.
Fréttin er í vinnslu.