Engin ástæða er fyrir almenning að bregðast sérstaklega við umfangsmikilli tölvuárás sem gerð var á upplýsingainnviði í gær. Almenningur verði helst fyrir netsvikum. Þetta segir sviðsstjóri almannavarna.
Viðbragðsáætlun snýr bæði að grunnþjónustu og öryggi
Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra og CERT-IS virkjuðu viðbragðsáætlun almannavarna vegna fjölgunar gervigreindarárása á tölvukerfi í gær.
Runólfur Þórhallsson, sviðsstjóri almannavarna, segir viðbragðsáætlunina fjalla um ómissandi innviði. „Þar eru undir upplýsingakerfi sem bæði stofnanir og fyrirtæki eru að starfrækja.“
Þau snúa að grunnþjónustu, öryggiskerfi þjóðarinnar.
„Það eru helst þau fyrirtæki og stofnanir sem eru undir þegar við erum að ræsa þessa viðbragðsáætlun. Þannig að upplýsingakerfi sem snúa að mikilvægri þjónustu. Það er ansi breitt svið, margir sem þurfa að bregðast við þessu.“
Almenningur þurfi þó ekki að bregðast sérstaklega við netárásum gærdagsins.
„Fyrir almenning er engin ástæða til að bregðast sérstaklega við. Það er netöryggissveitin og það eru sérfræðingar hjá þessum fyrirtækjum og stofnunum sem eru að vinna hörðum höndum að því að vera með mótvægisaðgerðir og varnir í þessari þróun sem við erum að upplifa núna.“
Þau kerfi sem eru undir í viðbragðsáætluninni eru til að mynda hjá raforkufyrirtækjum, fjarskiptafyrirtækjum, í veitugeiranum eða á flugrekstrarsviði.
„Þetta sem snýr að bæði grunnþjónustu og öryggi, með víðtækri skírskotun.“
Tölvuþrjótar sem gerðu netárás á hluta tölvukerfa Reykjavíkurborgar í gær nýttu sér skýjaþjónustuna Microsoft Azure.
Fjársýslan gerði, fyrir hönd fjármála- og efnahagsráðuneytisins, rammasamning í vor um kaup á Microsoft-hugbúnaðarleyfum fyrir ríkið.
Aðspurður hvort hægt sé að komast inn í tölvukerfi hjá öllum ríkisstofnunum í kjölfar árásarinnar segir Runólfur ekki svo vera.
„Það stöðumat sem við erum að teikna upp núna gefur okkur ekki tilefni til þess að þetta sé allt saman opið. Það eru miklar varnir uppi. Markmiðið núna er að efla enn frekar þessar varnir sem eru nú til staðar, efla árvekni og lyfta henni alveg upp, yfirfara viðbragðsáætlanir sem allar þessar stofnanir og fyrirtæki hafa til þess að bregðast við og auka vitundina um það hvað gervigreindin er að breyta þessu landslagi.“
Ansi hörð þróun
Runólfur segir CERT-IS og netöryggisfyrirtæki, sem veita stofnunum og fyrirtækjum þjónustu, vinna dag og nótt eftir árásirnar.
„Það er verið að bregðast við alls staðar og það er verið að efla varnir og bregðast við þessari þróun sem gervigreindin er að sýna okkur.“
Almenningur verði helst fyrir netsvikum frekar en árásum eins og voru gerðar í gær
„Vissulega þarf almenningur líka að efla sína vitund og þekkingu og vera árvökull yfir því að fara eftir leiðbeiningum sem hafa verið ítrekaðar: Ekki smella á einhverja hlekki sem þú kannast ekki við, ekki svara einhverjum tölvupóstum eða símtölum eða öðru. Þessi þróun er ansi hröð þannig að vissulega þurfum við árvekni hjá almenningi líka, hvað varðar netsvik.“
Runólfur bendir á leiðbeiningar inni á vef CERT-IS um netárásir og netsvik.
Ástandið metið daglega
Viðbragðsáætlunin verður áfram í gildi. Runólfur segir ástandið verða metið daglega.
„Það er eitt af því sem þessi viðbragðsáætlun virkjar, er það að það verður núna stöðugt samráð. Það er ekki þar með sagt að það hafi ekki verið samráð áður en núna er það daglega, stundum oft á dag. Samráð um það hvernig er verið að bregðast við.“
Þannig sé hægt að meta dagsdaglega hvort hægt sé að lækka viðbúnaðarstig.
„Ef allt gengur vel næstu daga og vikur þá er engin ástæða til að ætlast til annars en að við gerum það.“
Reiknar þú með að árásum eins og þessari eigi eftir að fjölga?
„Það lítur út fyrir að þessi þróun hafi hafist fyrir nokkrum vikum. Þetta viðbragð vonandi skýrir fyrir okkur hvernig næstu vikur fram undan líta út. Ég á von á því að við munum fá fleiri tilkynningar en vonandi fáum við ekki fleiri stór atvik á næstunni.“