Á síðustu Ólympíuleikum í matreiðslu munaði innan við einu stigi á Íslandi í þriðja sæti og sigurliðinu. Svo lítill getur munurinn verið á efstu liðunum þegar stigin úr báðum greinum eru lögð saman.
„Við ætluðum okkur á verðlaunapall og auðvitað hefðum við viljað standa þar í dag. En við erum gríðarlega stolt af liðinu okkar. Það skilaði gulli í báðum greinum og ég á erfitt með að sjá hvað við hefðum getað gert betur,“ segir Þórir Erlingsson, forseti Klúbbs matreiðslumeistara og framkvæmdastjóri kokkalandsliðsins.
„Mig grunar að það hafi munað mjög litlu, jafnvel broti úr stigi, en á morgun sjáum við hvernig liðin raðast fyrir neðan þriðja sætið. Liðin sem komust á pall náðu betri árangri og við berum fulla virðingu fyrir því. Við óskum þeim innilega til hamingju.“
Íslenska kokkalandsliðið fékk gull í báðum keppnisgreinum heimsmeistaramótsins í matreiðslu í Lúxemborg. Í fyrri greininni, Restaurant of Nations, eldaði liðið og framreiddi þriggja rétta kvöldverð fyrir 110 gesti. Seinni greinin, Chef’s Table, fór fram á þriðjudag. Gull í hvorri grein miðast við að minnsta kosti 90 stig af 100 mögulegum. Samanlögð stig úr greinunum tveimur ráða lokaröðun landsliðanna.
Tvö ár af undirbúningi
Alls eru 22 í íslenska hópnum í Lúxemborg, þar á meðal keppendur, þjálfarar og aðstoðarfólk. Ísak Aron Jóhannsson er fyrirliði íslenska liðsins og Georg Arnar Halldórsson þjálfari þess.
Undirbúningurinn tók tvö ár og hvert og eitt í liðinu og aðstoðarhópnum hefur lagt um 1.200 vinnustundir í verkefnið, samhliða daglegum störfum. Kostnaður Klúbbs matreiðslumeistara við verkefnið er um sjötíu milljónir króna.
Þetta er níunda heimsmeistaramót íslenska kokkalandsliðsins í Lúxemborg frá árinu 1994. Fyrir mótið í ár kom besti árangur liðsins árið 2014 þegar liðið fékk gull í báðum greinum og varð í fimmta sæti samanlagt.
Liðið hefur einnig keppt átta sinnum á Ólympíuleikunum í matreiðslu og varð í þriðja sæti í heildarkeppninni á síðustu tveimur leikum, árin 2020 og 2024.