Úrskurðarnefnd lögmanna hefur vísað frá kvörtun aðila sem taldi lögmann stéttarfélags síns hafa brugðist sér í deilu við fyrrverandi vinnuveitanda. Var það mat nefndarinnar að kærandi hefði misskilið hlutverk lögmannsins. Lögmanninum umrædda hefði verið falið að meta hvort stéttarfélagið hefði afgreitt mál kærandans með réttum hætti. Lögmaðurinn hefði þó aldrei tekið að sér að reka sjálfur mál kærandans gegn fyrrum vinnuveitandanum.Úrskurðurinn féll 19. nóvember sl.
Freistaði þess að fá úrskurðarnefnd til að skikka lögmann til að taka mál hans að sér