Krýsuvíkurvegi var lokað um klukkan 17 í dag, milli Suðurstandarvegar og Leiðarendavegar, vegna umferðarslyss á Suðurstrandarvegi. Einnig er Suðurstrandarvegur lokaður milli Þorlákshafnar og Grindavíkur. Samkvæmt umferðarvef Vegagerðarinnar má búast við að lokunin vari í nokkurn tíma.
Krýsuvíkurvegi lokað vegna umferðarslyss