Skipstjórinn á Jökli ÞH hafði samband við Landhelgisgæsluna klukkan 17:05 í gær, sagði lúgu brotna að aftan og leka kominn að skipinu. Stjórnstöð Landhelgisgæslunnar bað áhöfn að fara í flotgalla. Mínútu síðar voru einingar boðaðar út og öll skip beðin að halda á staðinn.
Klukkan 17:17 hafði skipstjórinn samband við stjórnstöð Landhelgisgæslunnar, sagði alla komna í flotgalla og að áhöfnin væri að yfirgefa skipið, sem væri að sökkva. Hann tjáði stjórnstöðinni að ekki tækist að losa björgunarbát og að áhöfnin hefði misst hinn björgunarbátinn frá skipinu.
19 mínútum eftir fyrsta boð, klukkan 17:24, fékk Landhelgisgæslan merki í gegnum sjálfvirkan búnað um gervihnött sem gaf til kynna að skipið væri sokkið.
Þetta kemur fram í svari Landhelgisgæslunnar við fyrirspurn RÚV. Þar er tímalína útkalls og björgunaraðgerða útlistuð.
Þyrlan TF GRÓ tók á loft frá Reykjavíkurflugvelli klukkan 17:58 og lenti á Höfn í Hornafirði tæpum 2 klukkustundum síðar. Þyrlan var þung af eldsneyti og mikill mótvindur. Á Höfn tók þyrlan eldsneyti og losaði muni til að létta þyrluna.
Klukkan 19:12 ræddi stjórnstöð Landhelgisgæslunnar við áhöfn Jökuls, sem sagði níu manna hóp saman í sjónum. Síðar kom í ljós að þeir voru 11.
Flugvélin TF SIF tók á loft frá Reykjavíkurflugvelli klukkan 18:50 og var komin á vettvang 20:09. Áhöfnin varpaði tveimur björgunarbátum til áhafnarinnar, sem náði ekki til þeirra.
Þyrlan tók aftur af stað frá Höfn í Hornafirði klukkan 20:22 og klukkan 21:15 var hún komin í samband við áhöfn skipsins. Hún var komin á vettvang klukkan 21:21 og 9 mínútum síðar var hún búin að hífa fjóra um borð.
Fiskiskipin Svanur og Harðbakur voru komin á vettvang um sama leyti og þyrlan. Klukkan 21:51 kom áhöfn Harðbaks auga á fimm skipverja í sjónum og skaut til þeirra línu.
Klukkan 22:39 kom björgunarskipið Hafbjörg á vettvang og korteri seinna, klukkan 22:54 voru allir 17 skipverjar Jökuls ÞH komnir um borð í þyrluna. Hún lenti á Egilsstöðum klukkan 23:37.