Pawel Samilo er einn af áhafnarmeðlimum Jökuls ÞH 299 sem sökk austan við Gletting í gærkvöldi. Hann missti tvo góða vini sína til meira en tíu ára í slysinu voveiflega en segist alltaf hafa trúað því að hann myndi sjálfur lifa þetta af. Pawel hefur verið sjómaður í tuttugu ár á Húsavík og hann ætlar aftur á sjóinn.„Ég er í nokkuð góðu ástandi. Ég er rifbeinsbrotinn en annars í ágætu ástandi,“ segir Pawel þegar DV náði við hann sambandi síðdegis í dag.
Einkaviðtal DV við skipverja á Jökli -„Ég vissi að minn tími væri ekki kominn“