Skipið var sokkið innan við tuttugu mínútum eftir að Kristinn Hrannar Hjaltason, skipstjórinn, hafði fyrst samband við stjórnstöðina, samkvæmt tímalínu frá Landhelgisgæslunni.
Fylgjast má með nýjustu vendingum um slysið hér í vaktinni á Vísi.
Umræddri lúgu var bætt við skipið árið 2021, samkvæmt upplýsingum af Facebooksíðu Stálorku.
Fyrstu skilaboðin bárust stjórnstöðinni klukkan 17:05. Tólf mínútum síðar sagði skipstjórinn að áhöfnin væri komin í gallana en áhöfnin hefði ekki aðgang að björgunarbát. Annar þeirra væri fastur og hinn hefði fokið frá þeim.
Hann sagði þá einnig að áhöfnin þyrfti að yfirgefa Jökul, þar sem skipið væri að sökkva.
Sjá einnig: Allt niður í átján ára um borð
Klukkan 17:24 gaf sjálfvirkur búnaður skipsins merki sem gaf til kynna að það væri sokkið.
Það var svo ekki fyrr en 22:54, fimm og hálfum tíma eftir að skipið sökk, sem áhafnarmeðlimirnir voru komnir um borð í þyrlu Landhelgisgæslunnar.
Kl. 17:05 Skipstjórinn á Jökli hefur samband við stjórnstöð Landhelgisgæslunnar í Skógarhlíð og segir lúgu brotna að aftan og leki kominn að skipinu. Segir 17 um borð. Stjórnstöð biður áhöfn að fara í flotgalla.
Kl. 17:06 Einingar boðaðar út og öll skip beðin um að halda á staðinn.
Kl.17:17 Skipstjórinn hefur samband við stjórnstöð Landhelgisgæslu og segir alla komna í flotgalla. Áhöfn sé að yfirgefa skipið. Ná ekki að losa björgunarbát og hafa misst hinn björgunarbátinn frá skipinu. Skipið sé að sökkva.
17:24 Kemur merki til stjórnstöðvar í gegnum gervihnött frá sjálfvirkum búnaði um borð í skipinu sem gefur til kynna að það sé sokkið.
17:44 Björgunarskip á vegum Slysavarnafélagsins Landsbjargar á Austfjörðum og Norðurlandi eystra taka eitt af öðru að tilkynna um brottför úr höfn, áleiðis á slysstað.
17:58 Flugtak TF-GRO frá Reykjavíkurflugvelli.
18:06 Varðskipið Freyja heldur frá Siglufirði
18:50 TF-SIF tekur á loft frá Reykjavíkurflugvelli.
19:12 Varðstjórar í stjórnstöð Landhelgisgæslunnar ræða við áhöfn Jökuls sem segir níu manna hóp vera saman í sjónum. (Síðar kom í ljós að þeir voru 11)
19:56 TF-GRO lendir á Höfn og tekur eldsneyti. Hlutir úr þyrlunni eru fjarlægðir til að létta hana.
20:09 TF-SIF komin yfir vettvang. Áhöfnin varpar tveimur björgunarbátum úr flugvélinni en áhöfn Jökuls náði ekki til þeirra.
20:22 TF-GRO tekur á loft frá Höfn í Hornafirði
21:15 TF-GRO nær sambandi við áhöfn skipsins
21:21 TF-GRO er komin á vettvang sem og fiskiskipin Svanur og Harðbakur
21:30 TF-GRO búin að hífa fjóra um borð
21:51 Áhöfn Harðbaks sér fimm í sjónum og skýtur línu til þeirra.
22:39 Björgunarskipið Hafbjörg á vettvangi
22:54 Allir 17 komnir um borð í þyrluna.
23:37 TF-GRO lendir með áhöfn Jökuls á Egilsstöðum