Þetta kemur fram í nýbirtri tilraunatölfræði frá Hagstofu Íslands þar sem spáð er fyrir um fjölda og hlutfall einstakling eftir fjölskyldugerð. Fjölskyldugerðirnar eru flokkaðar sem hjónaband eða óvígð sambúð án barna , hjónaband eða óvígð sambúð með börnum, einstæðir foreldrar með börn og einstaklinga sem eru ekki í kjarnafjölskyldu, það er að segja þeir sem eru einhleypir.
Samkvæmt spánni verður það á sjöunda áratugi þessarar aldar sem einhleypir einstaklingar fara yfir fjörutíu prósent þjóðarinnar á meðan fjöldi þeirra í hjónabandi eða óvígðri sambúð með börnum fer hríðlækkandi. Sá hópur verði kominn undir þrjátíu prósent um árið 2040.
Hópi einstæðra foreldra fækkar en þó töluvert hægar en sambúðarfólki með börn. Þá fjölgar örlítið þeim sem eru í hjónabandi eða óvígðri sambúð án barna.
Til þess að gera þessa spá notar Hagstofan gögn um heildarmannfjölda á Íslandi og fjölda einstaklinga eftir fjölskyldugerð, auk sögulegra gagna og spár um fæðingartíðni og heildarmannfjölda. Þær eru gerðar til að mæta eftirspurn hjá notendum hjá ríki, sveitarfélögum, rannsakendum í fræðasamfélagi og atvinnulífi.