Rafræn þjónustukerfi Reykjavíkurborgar liggja enn niðri eftir alvarlega tölvuárás sem gerð var á hluta tölvukerfa borgarinnar í gær. Gripið var til ráðstafana til að verja kerfi og gögn borgarinnar. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Reykjavíkurborg.
Í henni segir að starfsfólk borgarinnar vinni með sérfræðingum netöryggisfyrirtækisins Syndis og netöryggissveitinni CERT-IS að því að meta umfang árásarinnar, tryggja öryggi kerfanna og koma þjónustunni í eðlilegt horf eins fljótt og unnt er.
Gera megi ráð fyrir röskun á rafrænni þjónustu hjá borginni næstu daga.
„Sum þjónustukerfi kunna að vera óaðgengileg, að öllu leyti eða að hluta, meðan unnið er að því að tryggja öryggi þeirra og virkni. Vinna við að koma kerfunum aftur í gagnið stendur yfir og vonast er til að hægt verði að opna fyrir aðgang að einstökum kerfum síðar í kvöld eða í fyrramálið. Ekki liggur þó fyrir hvenær öll kerfi verða að fullu komin í lag,“ segir í tilkynningunni.
Samkvæmt heimildum fréttastofu komust tölvuþrjótar yfir lykilorð og inn í gagnagrunn hjá Reykjavíkurborg.
Fréttastofa hefur leitað eftir staðfestingu frá borginni um hvort gögn um viðkvæma persónuhagi fólks væru í hættu en borgarritari vildi ekki staðfesta það. Ekki hefur náðst í borgarstjóra í dag.
Fréttastofa hefur heldur ekki náð í forstjóra Syndis.