Þrír fórust og 14 var bjargað um borð í þyrlu Landhelgisgæslunnar þegar fiskiskipið Jökull ÞH sökk um 60 sjómílur austur af landinu síðdegis í gær.
Atburðarásin var hröð eftir að skipstjóri tilkynnti um brotna lúgu að aftan og leka sem væri kominn að skipinu.
„Litli bróðir minn er á lífi,“ skrifar Eva Margrét Ásmundsdóttir í færslu á Facebook og segir þessi orð hafa ómað í hug sér síðustu klukkustundir. Yngri bróðir hennar, Viktor Máni Ásmundsson var um borð í þyrlunni.
Eva segir að erfitt sé að lýsa þeirri tilfinningu að bíða eftir fréttum sem geti á einu augnabliki breytt lífi manns að eilífu.
Fjölskyldan hafi haldið fast í vonina. „[E]n eftir því sem tíminn leið og alvarleiki aðstæðnanna varð okkur ljósari fór hugurinn ósjálfrátt að búa sig undir það sem hjartað neitaði að sætta sig við,“ bætir hún við.
„Þakklát alla ævi“
Björgunaraðgerðir á slysstað voru umfangsmiklar og stóðu í um tvo klukkutíma. Þá höfðu skipverjar verið nokkrar klukkustundir í köldum sjó. Þyrlan með sautján skipverja lenti á Egilsstaðaflugvelli laust fyrir miðnætti.
„Á þessum löngu klukkustundum hugsaði ég um litla strákinn sem ég á svo ótal margar minningar með og hversu stolt ég er af manninum sem hann er orðinn. Ég hugsaði um konuna hans sem beið eftir fréttum líkt og við hin, og litlu börnin þeirra tvö sem eiga svo margt ólifað með pabba sínum. Ég hugsaði um allar stundirnar sem við eigum eftir að eiga saman og allt það sem ég hef kannski ekki sagt honum nógu oft.“
Hún segist eiga hugrekki viðbragðsaðila, sem hafi lagt eigið öryggi að veði til að bjarga lífi annarra, að þakka að litli bróðirinn sé á lífi.
„Þið gáfuð mér bróður minn aftur, konunni hans eiginmanninn sinn og litlu börnunum þeirra pabba sinn. Fyrir það verð ég ykkur þakklát alla ævi,“ skrifar hún og ávarpar þar þyrluáhöfn gæslunnar.
Samhliða þessum létti og þakklæti sé þó djúp sorg enda hafi þrír sjómenn ekki lifað af.
„Á meðan við fengum fréttirnar sem við höfðum vonað svo innilega að fá, varð það sem við óttuðumst mest að veruleika annarra fjölskyldna,“ skrifar Eva. „Það er ekki hægt að hugsa um gæfu okkar án þess að hugsa um missi þeirra. Hugur minn er hjá fjölskyldum mannanna, vinum þeirra og ástvinum. Ég votta þeim mína dýpstu og innilegustu samúð.“
„Atburðir gærdagsins eru sár áminning um hversu dýrmætt lífið er og hversu lítið í því er sjálfgefið.“
„Við vitum aldrei hvað morgundagurinn ber í skauti sér“
Lára Ósk Hlynsdóttir, sem á einnig bróður sem var um borð í Jökli, birtir einnig færslu á Facebook þar sem hún segir lífið dýrmætt og atburði sem þessa minna fólk á hversu mikilvægt er að hugsa vel um fólkið sitt og njóta samverunnar með því. Bróðir hennar, Sigurður Frímann Snæbjörnsson, var einnig um borð í skipinu.
„Við vitum aldrei hvað morgundagurinn ber í skauti sér og það er aldrei sjálfgefið að fá sína nánustu heim í faðminn,“ skrifar hún og bætir við:
„Bróðir minn var um borð í skipinu sem sökk. Hann komst sem betur fer lífs af og erum við fjölskyldan óendanlega þakklát fyrir það.“
Rétt eins og Eva segir Lára það erfitt að lýsa tilfinningunum sem fylgja svona atburði. Fyrst og fremst sé fjölskyldan þakklát fyrir að bróðirinn hafi komist heill heim.
„Við viljum senda okkar innilegustu þakkir til allra þeirra sem komu að björguninni og lögðu sitt af mörkum við að koma fólkinu í öruggt skjól. Það verður seint fullþakkað það starf og sú hjálp sem veitt var“
„Hugur okkar er hjá þeim sem eiga um sárt að binda eftir þennan atburð. Við sendum þeim og fjölskyldum þeirra okkar hlýjustu hugsanir og innilegar samúðarkveðjur.“