Atburðarásin þegar Jökull sökk austan við land í gær var hröð. Skipstjórinn Kristinn Hrannar Hjaltason tilkynnti um brotna lúgu og leka sem kominn væri að skipinu klukkan 17:05 og aðeins tólf mínútum síðar hafði skipstjórinn aftur samband við stjórnstöð Landhelgisgæslunnar og sagði áhöfnina vera að yfirgefa skipið.
Hafðist áhöfnin við í sjónum í rúma fimm tíma áður en henni var bjargað af þyrlusveit TF-GRO en rétt fyrir klukkan ellefu voru allir sautján áhafnarmeðlimirnir komnir um borð í þyrluna. Í morgun var síðan tilkynnt að þrír hefðu látist í slysinu.
Alida Glacial og Aliza Glacial
Jökull hét upphaflega Aliza Glacial og var smíðaður bæði í Póllandi og síðan í Noregi árið 1996 í skipasmíðastöðinni Westcon Yard. Skipið var 38,5 metrar að lengd en það hefur verið í eigu útgerðarinnar GPG Seafood á Húsavík síðan árið 2020.
Árið 1996 var skipið Alida Glacial einnig smíðað í skipasmíðastöðinni Westcon Yard og Póllandi. Líklegt þykir að skrokkur skipsins hafi verið smíðaður í Póllandi og það svo klárað hjá Westcon Yard. Það skip var 39 metrar á lengd og fékk síðar nafnið Malakhit og hét því nafni þegar það sökk í Barentshafi árið 2004.
Á vef gagnagrunnsins Histarmar segir að Malakhit hafi verið smíði númer tíu hjá Stocznia Polnocna í Póllandi en Jökull smíði númer ellefu hjá sömu skipasmíðastöð.
Í umfjöllun rússneskra miðla segir að Malakhit, sem sigldi undir rússneskum fána þegar það sökk, hafi fengið sjó inn í lestina í gegnum lúgu á efra þilfari með þeim afleiðingum að skipið fékk slagsíðu. Sjór streymdi inn í lestina og sökk skipið um tveimur tímum eftir að neyðarkall barst. Í frétt NRK segir að tveir úr áhöfn hafi látist en átján verið bjargað.
Svipar þessu óneitanlega til slyssins í gær þar sem skipstjóri Jökuls tilkynnti Landhelgisgæslunni að lúga hefði brotnað og leki væri kominn að skipinu. Aflafréttir greindu frá því á vef sínum í dag að mikill sjór hefði komist inn um aflalúgur Jökuls sem hefði valdið því að skipið tók að halla hratt áður en það sökk. Samkvæmt heimildum fréttastofu er þó ekki um sömu lúgu að ræða og á systurskipinu Malakhit.
Galli á hönnun lúga ástæða þess að Kambur sökk
Þá má einnig finna líkindi með slysinu í gær og því þegar línuskipið Kambur sökk við Færeyjar fyrir rúmum tveimur árum. Það skip var einnig byggt í Noregi árið 1998, tveimur árum seinna en Jökull og Malakhit. Í umfjöllun Fishing Daily um ástæður þess að Kambur sökk segir að galli á hönnun lúga sem og erfiðar veðurástæður hafi verið valdur að slysinu.
Þar kemur einnig fram að sjór hafi komist inn um lúgu á bakborða skipsins sem skipverjar náðu ekki að loka. Tveir áhafnarmeðlimir Kambs létust í slysinu en fjórtán var bjargað.
Tekið skal fram að enn á eftir að rannsaka ástæður þess að Jökull sökk en rannsóknarnefnd samgönguslysa hefur tekið við málinu. Því er of snemmt að fullyrða um ástæður þess að Jökull sökk.