Mjög alvarlegt umferðarslys varð á Suðurstrandarvegi fyrir rétt fyrir klukkan fimm.
Suðurstrandarvegur er lokaður milli Þorlákshafnar og Grindavíkur vegna umferðarslyss. Krýsuvíkurvegur er einnig lokaður milli Suðurstrandarvegar og Leiðarendavegar.
Bjarney S. Annelsdóttir, yfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á Suðurnesjum, segir að verið sé að vinna úr aðstæðum og upplýsingar verði veittar þegar hægt er.
Á vef Vegagerðarinnar segir að viðbúið sé að lokunin vari í nokkurn tíma.
Fréttin verður uppfærð.