Trump Bandaríkjaforseti kveðst hafa beðið Pútín Rússlandsforseta um að hætta öllum árásum í garð Evrópuríkja. Í færslu á samfélagsmiðli sínum Truth Social segist Trump hafa beðið Pútín um þetta þegar þeir hittust í Kína á dögunum. Hann telji að slíkt myndi greiða mjög fyrir samkomulagi um stríðslok í Úkraínu.
Þetta þykir nokkuð annar tónn en heyrist í heimsókn Trumps til Kína þar sem hann kallaði Pútín vin sinn. „Í spjalli mínu við Pútín Rússlandsforseta í Kína fór drjúgur tími í tal um þá staðreynd að ég myndi vilja að hann myndi hætta öllum hernaðarárásum í Evrópu, í þeirri von að slíkt myndi flýta fyrir samkomulagi milli Rússlands og Úkraínu,“ segir í færslu Trumps.
Bandaríkjaforseti átti fund með Mark Rutte, framkvæmdastjóra NATO, á Flórída í gær. Í sameiginlegri yfirlýsingu þeirra eftir fundinn var krafa til Rússa um að láta stríðið ekki breiðast enn frekar út.
Ekki kemur fram hvaða svæði Trump eigi við og Úkraína er ekki nefnd sérstaklega í yfirlýsingunni. Það hefur verið titringur í Evrópu vegna þess sem kallað er skuggastríð. Þar á meðal eru þrjú rússnesk flugskeyti sem fundust í Póllandi í síðustu viku.
Á dögunum skammaði Trump stjórnvöld í Úkraínu fyrir árásir á olíuinnviði í Rússlandi og hefur látið í veðri vaka að ríkin beri jafn mikla sök á því að innrásarstríðinu. Í þessum nýjustu yfirlýsingum Trumps eru ekki skipanir til Úkraínumanna um að halda aftur af árásum.