„Í kjölfar hins hörmulega sjóslyss þegar Jökull ÞH sökk viljum við, fjölskylda skipstjórans, koma á framfæri okkar innilegasta þakklæti til allra þeirra sem komu að björgunaraðgerðunum,“ segir í yfirlýsingunni.
Þau vilji færa Landhelgisgæslunni, áhöfn þyrlunnar, áhöfnum björgunarskipa, Slysavarnafélaginu Landsbjörg, Neyðarlínunni, lögreglu, heilbrigðisstarfsfólki og öllum öðrum viðbragðsaðilum sem lögðu sitt af mörkum við þessar erfiðu og krefjandi aðstæður sérstakar þakkir.
„Þið stóðuð frammi fyrir ótrúlega erfiðum aðstæðum, myrkri, miklum sjó og slæmu veðri, en sýnduð ótrúlegt hugrekki, fagmennsku, æðruleysi og samstöðu,“ segir einnig í yfirlýsingunni. Það sé erfitt að finna orð sem nái utan um það þakklæti sem þau beri í hjörtum sínum.
„Fyrir okkur sem fjölskyldu verður aldrei hægt að fullþakka það sem þið gerðuð.“
Þau vilja jafnframt senda fjölskyldum þeirra sem létust sína dýpstu samúð og vilja að þau viti að hugur þeirra sé hjá þeim á þessum erfiðu tímum. Til allra sem komu að björguninni:
„Takk fyrir hugrekkið, fórnfýsina, mannúðina og ómetanlegt starf. Þið eigið alla okkar virðingu og ævarandi þakklæti.“