Ringqvist greindi frá því á blaðamannafundi í dag að flokkarnir hygðust mynda saman minnihlutastjórn en forystumenn flokkanna hafa fundað strangt í dag.
Ringqvist viðurkenndi að ákvörðunin hefði ekki notið einróma samþykkis í þingflokki Miðflokksins en fyrir tveimur dögum runnu viðræður miðjumanna við Vinstriflokkinn og Jafnaðarflokkinn út í sandinn.
Nú er útlit fyrir að Kristersson, sem er formaður Moderaterna, muni mynda stjórn ásamt Miðflokknum auk Kristilegra demókrata og Frjálslyndra, sem heyra undir bláu blokkina svokölluðu.
Hvorki hægri né vinstri blokkinni hefur hingað til tekist að mynda meirihluta á þeim 74 dögum sem liðnir eru frá því að Svíar kusu sér nýtt þing.
Þess má þó vænta að trúnaðarráð Miðflokksins muni koma saman á fund til að taka endanlega ákvörðun en SVT greinir frá því að á mánudag muni þingmenn greiða atkvæði um það hvort Kristersson verði áfram forsætisráðherra sem forsætisráðherra.
Sú atkvæðagreðisla yrði sú þriðja slíka það sem af er kjörtímabilinu en ef ekki næst að mynda þingmeirihluta eftir fjórar slíkar atkvæðagreiðslur þarf að boða til nýrra kosninga.