Bóksala í haust er meiri en verið hefur undanfarin ár og bóksalar eru bjartsýnir á sölu fyrir jólin. Samkeppni á íslenskum bókamarkaði hefur aukist á undanförnum árum. Um langt skeið hafa stórmarkaðir komið inn á jólamarkaðinn og á undanförnum árum hefur Storytel veitt hefðbundnum bókum samkeppni og nýtur þess að fá endurgreiðslur á kostnaði við framleiðslu hljóðbóka fyrir streymi. Ingimar Jónsson, forstjóri Pennans, er gestur Ólafs Arnarsonar í hlaðvarpi Markaðarins.
Ingimar Jónsson: Bóksala sterk í ár – sérstaklega innbundnar bækur