Sænski Miðflokkurinn ætlar að styðja ríkisstjórn Ulfs Kristerssons. Leiðtogi flokksins, Elisabeth Thand Ringqvist, tilkynnti þetta á blaðamannafundi í dag.
Forysta flokksins sat á fundi með þingflokknum í nokkra klukkutíma í dag en tókst ekki að komast að samkomulagi. Ringqvist segir að ekki hafi ríkt full eining um þá ákvörðun að styðja Kristersson í embætti forsætisráðherra. Næst á dagskrá er að funda með æðsta ráði flokksins.
Þingið greiðir atkvæði á mánudag um það hvort Kristersson verði forsætisráðherra.
Þingkosningar voru í Svíþjóð 13. september. Hvorki hefur gengið né rekið að mynda stjórn. Miðflokkurinn tilheyrði áður bláu blokkinni en hefur fjarlægst hana vegna andstöðu við Svíþjóðardemókrata sem studdu síðustu stjórn.
Formaður Miðflokksins sagðist í vikunni ekki útiloka samstarf við Svíþjóðardemókrata. Sænska ríkissjónvarpið hefur eftir heimildamönnum að skiptar skoðanir séu innan flokksins. Fari svo að ákveðið verði að styðja stjórn Kristerssons gæti það hreinlega klofið flokkinn.
Kristersson fagnar tíðindunum og segir að samsteypustjórn sem leggi áherslu á vöxt og velferð verði góð fyrir Svíþjóð.