Tölvuárás á vefhýsingarfyrirtækið 1984 sannar að það sem gert er á Íslandi hafi áhrif langt út fyrir landsteinana. Þetta kemur fram í yfirlýsingu Félagsins Ísland-Palestína sem segir netárásina hafa verið árás á fullveldi íslensku þjóðarinnar, tæknilega innviði og almenna borgara á Íslandi.
Alvarleg aðför að tjáningarfrelsi
Minnst þrjár íslenskar vefsíður þar sem lýst er yfir stuðningi við málstað Palestínumanna voru eyðilagðar í netárásinni á vefhýsingarfyrirtækið 1984 í síðustu viku.
Í yfirlýsingu Félagsins Ísland-Palestína segir að árásin hafi beinst gegn sjö vefsíðum sem styðji málstað Palestínu.
„Félagið telur þessa árás vera alvarlega aðför að tjáningarfrelsi. Rannsókn stendur yfir á hver árásaraðillinn er og telja forsvarsmenn 1984 að líklegast hafi árásin verið gerð af þjóðríki. Ákveðið ríki stærir sig ítrekað af getu sinni til að geta njósnað um og brotist inn í tölvukerfi almennings og annarra ríkja: Ísraelsríki.“
Það væri ekki í fyrsta skipti sem ríkið hafi afskipti á Íslandi. Í yfirlýsingunni er minnst á þegar ísraelska fyrirtækið Black Cube aflaði gagna um Jón Gunnarsson, alþingismann og fyrrverandi ráðherra.
„Þrátt fyrir augljósa hættu á að Ísraelsríki og ísraelsk tæknifyrirtæki njósni um íslenskan almenning kaupir íslenska ríkið enn þjónustu frá ísraelskum tæknifyrirtækjum.“
Það gangi gegn hagsmunum íslensks almennings, öryggishagsmunum þjóðarinnar og tilskipunum Allsherjarþings Sameinuðu þjóðanna sem banni viðskipti við fyrirtæki sem hagnist á hernámi í Palestínu.
Félagið rifjar upp að mörg hundruð íslensk fyrirtæki hafi slitið tengslum við greiðslumiðlunina Rapyd á síðustu árum vegna stuðnings fyrirtækisins við þjóðarmorð Ísraels í Palestínu.
„Enn fara þó öll kortaviðskipti við íslenska ríkið í gegnum Rapyd og margir af mikilvægustu innviðum landsins eru háðir þjónustu þess.“
Félagið segir tölvuárás á 1984 vera árás á fullveldi íslensku þjóðarinnar, „tæknilega innviði á Íslandi og íslenska borgara.“
„Þessi árás sannar að það sem við aðhöfumst hér á Íslandi hefur sannarlega áhrif langt út fyrir landsteinana. Barátta okkar gegn þjóðarmorði og hernámi Ísraelsríkis er réttmæt, og sýnir að glæpamennirnir óttast umfjöllun og afhjúpanir. Tilraunir til að hindra baráttu okkar er hvatning til að halda ótrauð áfram af enn meiri krafti í baráttunni fyrir frjálsri Palestínu.“