Jens Þór Sigurðarson, flugstjóri þyrlu Landhelgisgæslunnar, segir að ákvörðun um að brjóta reglur til að bjarga skipverjum á Jökli ÞH hafa verið tekna áður en þyrlan lagði af stað frá Reykjavík.
„Við erum boðaðir hérna niður á mesta forgangi. Á leiðinni heyri ég í stjórnstöðinni til að fá frekari upplýsingar. Það sem vakti fyrir mér var að staðan var sú að við erum bara með eina vél,“ segir Jens.
Samkvæmt verklagi Landhelgisgæslunnar má þyrla ekki fara lengra en 20 mílur frá strönd án þess að vera með liðsauka.
„Vegna þess að það er þá enginn að fara að sækja okkur ef illa fer. Ég átti það samtal við minn yfirmann og forstjóra gæslunnar að þetta væru virkilega krefjandi aðstæður og það myndi mæða á bæði vél og mannskap,“ segir Jens.
„Það er ákveðið að fara af stað með samþykki allra áhafnarmeðlima og yfirmanna gæslunnar. Þeir voru upplýstir,“ segir Jens í ítarlegu viðtali sem má horf á hér í spilaranum:
Skipstjóri Jökuls ÞH hafði samband við Landhelgisgæsluna klukkan 17:05. Hann tilkynnti að lúga væri brotin og að sjór flæddi inn í skipið. 19 mínútum síðar var skipið sokkið. Þyrlan kom á vettvang þremur klukkustundum síðar eftir að hafa flogið blindflug fyrir suðurströnd landsins og stoppað til að taka eldsneyti á Höfn í Hornafirði.
„Manni finnst þetta fljúga nánast afturábak,“ segir Jens og lýsir því af hverju flugið tók svo langan tíma.
Þegar þyrlan nálgaðist slysstað fór áhöfnin að fá betri mynd af aðstæðum þökk sé kortlagningu áhafnar TF SIF, flugvélar Gæslunnar, sem var komin á vettvang um 90 mínútum áður.
„Þannig að leit sem slík var ekki löng, við höfðum góða mynd þegar við komum á slysstað hvernig við myndum standa að þessu. Það var gengið beint til verks og farið í hífingu í fyrsta hóp bara leið og við mættum.“
Jens segir Landhelgisgæsluna ítrekað hafa bent á að staða sem þessi gæti komið upp, að aðeins ein þyrla yrði til taks þegar slys bæri að.
„Þetta er staðan sem við erum sett í og á meðan fólk er upplýst og áhöfnin er til og við treystum búnaðnum og aðstæðum þá förum við og gerum það sem við mögulega getum.“
Hann segist hafa fundið að öll áhöfnin var 150% tilbúin að fara af stað í verkefnið.
Jens segir að þeir hafi vitað að einhverjir úr áhöfninni væru á lífi í sjónum.
„Það er svona það sem keyrir mann áfram að það eru þá kannski fleiri á lífi, og heldur manni á tánum að gera þetta eins hratt og öruggt og við mögulega getum.“
90 mínútum eftir komu þyrlunnar höfðu allir 17 skipverjarnir verið hífðir um borð. Þegar tveir skipverjar voru enn í sjónum þurfti þyrlan frá að hverfa um stund til að brenna eldsneyti því hún var orðin of þung.
Jens segir veðuraðstæður hafa valdið því að hífing tók lengri tíma, og líka að skipverjarnir voru bæði fastir í félagalínu og neti.
„Átökin og vinna fyrir sigmennina niðri að halda vírnum frá þannig að þeir flæki sig ekki í henni var þess eðlis að við vorum með tvo og þeir skiptust á að taka hífingarnar.“
Jens segir sigmennina hafa tekið mikla áhættu og ekki sjálfgefið að þeir hætti sér í aðstæður sem þessar.
Undirbjuggu sig undir miklu lengri leit
Hann segir tilfinningarnar blendnar. Slysið hafi verið hörmulegt og aðstæður þær verstu.
„Við erum ofsalega þakklát að það komu allir heim. Auðvitað hefðum við viljað koma með alla heila heim. En maður er mest þakklátur fyrir það að við komum með alla heim og að vera ekki í leit,“ segir Jens.
Þeir hafi verið byrjaðir að undirbúa að fá eldsneyti á Norðfjörð, aðra áhöfn á þyrluna til að leita um nóttina og þau gætu svo tekið aftur við í hádeginu í dag.
„Það er svolítið reyndin í þessum sjóslysum, sérstaklega þegar þú ert kominn út fyrir þessar 30, 40 sjómílur í þennan öldugang, þetta eru nokkrir dagar í leit, því miður hefur sagan kennt okkur það.“