Mjög alvarlegt umferðarslys varð á Suðurstrandarvegi klukkan 16:14. Umferðarslysið varð á milli vörubifreiðar og fólksbifreiðar. Við áreksturinn kviknaði eldur í fólksbifreiðinni.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á Suðurnesjum.
Fjölmennt lið viðbragðsaðila frá lögreglunni á Suðurnesjum, Brunavörnum Suðurnesja og Slökkviliði Grindavíkur fór á vettvang.
Rannsóknardeild embættisins vinnur enn að vettvangsrannsókn í samstarfi við tæknideild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Í tilkynningunni segir að rannsóknarnefnd samgönguslysa hafi einnig komið á vettvang.
Fréttin hefur verið uppfærð með tilkynningu frá lögreglustjóranum á Suðurnesjum. Suðurstrandavegur er enn lokaður.