Það var á fundi nefndarinnar 18. nóvember síðastliðinn sem Magnús Benediktsson, fulltrúi Seltjarnarness, óskaði eftir að bjórsalan yrði til umræðu. Var Þorvaldi og skrifstofustjóra Útilífsborgar, deildar innan menningar- og íþróttasviðs Reykjavíkurborgar, falið að afla upplýsinga um mögulega áfengissölu á svæðinu.
Þorvaldur segir í samtali við Vísi að sveitarfélögin sem reka skíðasvæðið myndu aldrei sjálf standa í bjórsölu en hins vegar komi til greina að fá utanaðkomandi aðila til að reka veitingasöluna. Rekstur skíðasvæðisins sé þungur og mikil óvissa um tekjur á hverju ári, því opnun svæðisins er vissulega háð tíðarfari. Ekkert hefur þó verið ákveðið og er málið einfaldlega til skoðunar. Kanna hvort það sé yfirhöfuð geranlegt, löglegt og æskilegt.
Telji nefndin hins vegar eftir þá skoðun fýsilegt að leyfa bjórsölu þyrfti samstarfsnefndin að leggja tillögu þess efnis fyrir stjórn Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu. Yrði tillagan samþykkt þar þyrfti hún síðan að fara fyrir stjórnir hvers sveitarfélags á höfuðborgarsvæðinu sem standa að rekstri skíðasvæðisins.
Það eru sveitarfélögin sjálf sem sjá því um veitingasöluna í vetur og því ekki miklar líkur á að nýr aðili myndi taka við henni í vetur. Áfengissala kæmi því í fyrsta lagi til greina í Bláfjöllum veturinn 2027 til 2028.
Nú þegar er áfengissala leyfð í Hlíðarfjalli á Akureyri en forstöðumaður svæðisins, Brynjar Helgi Ásgeirsson, sagði við Vísi í febrúar að áfengissalan hefði reynst vel.