Tólf læknar komu víða að af Austfjörðum og Austurlandi í gærnótt til að hlúa að skipverjum Jökuls ÞH eftir að þeir komu í land með þyrlu Landhelgisgæslunnar.
Viðbragðsáætlun Heilbrigðisstofnunar Austurlands var virkjuð og komið var upp söfnunarsvæði slasaðra á heilsugæslunni á Egilsstöðum. Starfsfólk úr ólíkum deildum tók þátt í undirbúningi og tókst að manna læknis- og hjúkrunarteymi fyrir hvern sjúkling.
Fanney Vigfúsdóttir, yfirlæknir heilsugæslunnar á Egilsstöðum, segir verkefnið hafa verið gífurlegt fyrir svo litla heilbrigðisstofnun og fámennt samfélag.
Þórarna Gró Friðjónsdóttir, forstjóri Heilbrigðisstofnunar Austurlands, segir aðgerðirnar hafa gengið vel. Þeim lauk um klukkan þrjú í gærnótt.