Málið lenti á borði Áfrýjunarnefnd í kærumálum háskólanema eftir að kona sótti um að taka þátt í inntökuprófi í tannlæknisfræði við Háskóla Íslands sem fór fram í vor en var synjað um þátttöku. Synjunin byggðist á því að viðkomandi hafði ekki greitt próftökugjaldið fyrir auglýst tímamark.
Konan fór fram á að ákvörðunin yrði felld úr gildi og að henni yrði gert heimilt að þreyta prófið. Til vara krafðist hún þess að niðurstöður inntökuprófs síns frá júní 2025 yrðu teknar gildar eða að háskólanum yrði gert að finna aðra sambærilega lausn á námsferli sínum .
Í málsatvikum er því lýst hvernig konan skráði sig í inntökuprófið áður en skráningunni lauk og fékk svar þess efnis að umsóknin væri móttekin. Í svarpóstinum kom einnig fram að greiða ætti 35 þúsund króna próftökugjald fyrir klukkan fjögur síðdegis þann 1. júní. Tveimur tímum eftir að greiðslugáttin lokaði gerði konan sér grein fyrir mistökunum og hafði samband við skólann.
Hún segir í erindi sínu að tekið hafi verið vel í erindi hennar þar sem um augljós mannleg mistök hafi verið að ræða þar sem fresturinn fyrir inntökuprófið hafi verið á miðnætti en greiðslan hafi átt að berast fyrir klukkan fjögur. Hún viðurkenndi að um mannleg mistök hafi verið að ræða en ekki skeytingarleysi.
„Hafi kærandi því ítrekað gert reka að því að fá að greiða próftökugjaldið upp frá þessu. Því hafi það komið kæranda á óvart þegar synjun á próftökurétti barst frá deildarforseta tannlæknadeildar þann 4. júní 2026,“ segir í úrskurði nefndarinnar.
Synjunin hafi verulega íþyngjandi afleiðingar og tefji námsframvindu hennar. Þá hafi hún verið meðal nemenda sem hafi náð bestum árangri að lokinni haustönn og verið nálægt því að tryggja sér eitt af átta sætunum til áframhaldandi náms.
Öðrum hafi verið hafnað
Háskólinn brást við kærunni og sagði að öðrum nemanda sem ekki hefði greitt gjaldið hefði verið synjað um þátttöku. Þá hefði Læknadeild einnig borist fyrirspurnir símleiðis frá einstaklingum sem ekki hefðu greitt gjaldið innan frests.
„Kvaðst háskólinn ekki hafa á reiðum höndum nákvæman fjölda þeirra nemenda sem greitt hefðu próftökugjaldið of seint, en staðfesti að engum hafi verið veitt undanþága,“ segir í úrskurðinum.
„Þá spurði nefndin hvort viðlíka tímafrestir væru einnig viðhafðir varðandi staðfestingu nemanda á að hann þiggi sæti að lokinni próftöku, og var þeirri spurningu svarað með sambærilegum hætti, þannig að það séu ekki sambærileg próf í öðrum deildum og því lægju ekki fyrir slíkar upplýsingar.“
Háskólinn byggi á því að inntökuprófið sé samkeppnispróf um takmarkaðan fjölda námsplássa og sé mikilvægt við þær aðstæður að fylgja fyrirfram kynntum skilyrðum. Hann geri sér grein fyrir því að niðurstaðan sé íþyngjandi en telji hana ekki ganga lengra en nauðsynlegt sé til að tryggja jafnræði, fyrirsjáanleika og samræmda framkvæmd.
Svaraði ekki
Nefndin tók málið til umfjöllunar og bauð konunni tvisvar að koma á framfæri athugasemdum en fékk engin svör. Nefndarmenn leit bæði til þess að synjunin væri íþyngjandi fyrir konuna og að hún hefi fengið upplýsingar um greiðslutímamarkið með góðum fyrirvara. Engin tæknileg mistök hefðu átt sér stað.
Þá hafi öðrum sem gleymdu að greiða gjaldið á tilsettum tíma einnig verið synjað um þátttöku í prófinu. Einnig þyrfti að líta til þess að ef nefndin myndi heimila henni að taka prófið yrði búið til fordæmi til framtíðar. Þá er synjunin ekki talin vera í bága við meðalhófsreglu.
Áfrýjunarnefndin í kærumálum háskólanema hafnaði því kröfu konunnar um að felld yrði úr gildi ákvörðun háskólans um að synja henni um þátttöku í inntökuprófi í tannlæknisfræði. Sömuleiðis var kröfum hennar um að þreyta sérstakt próf, taka niðurstöður inntökuprófs hennar frá árinu 2025 gildar eða finna sambærilega lausn hafnað.