Móðir hans, Elín Halla Þórhallsdóttir, greinir frá þessu í færslu á Facebook.
„Það er með djúpri sorg og þungum hjörtum sem við tilkynntum að okkar ástkæri Eggert lést í sjóslysinu í gær þegar Jökull ÞH 299 fórst,“ skrifar Elín.
Þrír fórust og fjórtán var bjargað um borð í þyrlu Landhelgisgæslunnar þegar fiskiskipið Jökull ÞH sökk um 60 sjómílur austur af landinu síðdegis í gær.
„Hugur okkar er jafnframt hjá fjölskyldum og ástvinum þeirra sem einnig misstu ástvini sína í þessu hörmulega slysi, sem og öðrum skipverjum og aðstandendum þeirra,“ bætir Elín við.
Hinir tveir sem létust í slysinu eru annars vegar frá Póllandi og hins vegar frá Húsavík.