Eggert Ellertsson, 41 árs gamall sjómaður, lést þegar línuskipið Jökull sökk úti fyrir Austurlandi á miðvikudag. Frá þessu greinir Elín Halla Þórhallsdóttir móðir Eggerts á Facebook.
„Okkar ástkæri Eggert lést í sjóslysinu í gær þegar Jökull ÞH 299 fórst,“ segir Elín. „Hugur okkar er jafnframt hjá fjölskyldum og ástvinum þeirra sem einnig misstu ástvini sína í þessu hörmulega slysi, sem og öðrum skipverjum og aðstandendum þeirra.“
Eggert var einn þriggja manna sem létust í slysinu en 14 öðrum áhafnarmeðlimum var bjargað eftir flóknar aðgerðir við erfiðar aðstæður.
Sjóbjörgunarsveitir og Landhelgisgæslan voru kallaðar út skömmu eftir klukkan 17 í gær eftir að neyðarkall barst frá Jökli um 60 sjómílur út af Glettingi austan við landið. Skömmu eftir að útkallið barst yfirgaf áhöfnin skipið.