Þetta segir yfirlögregluþjónn almannavarnadeildar ríkislögreglustjóra. Nokkuð hefur verið fjallað um umfangsmikla árás á vefhýsingarfyrirtækið 1984 í síðustu viku. Runólfur Þórhallsson segir að fleiri alvarleg atvik hafi komið upp síðustu daga.
„Það eru komnar nokkrar tilkynningar í dag og það eru tilkynningar líka erlendis og í þessu samhengi var þessi ákvörðun tekin,“ segir hann í samtali við Vísi.
„Akkúrat núna get ég ekki endilega tjáð mig um einhver einstök fyrirtæki eða stofnanir,“
Eru þetta þá alvarleg atvik?
„Já, ég myndi segja að það eru tilkynningar sem hafa verið að berast núna sem eru þess eðlis að við teljum ástæðu til þess að virkja þessa viðbragðsáætlun.“
Í einhverjum tilvikum hafi óprúttnir aðilar náð að brjóta sér leið inn í tölvukerfi. Bæði sé um að ræða einkafyrirtæki og opinbera aðila.
Runólfur segist ekki geta greint nánar frá öryggisatvikunum á þessari stundu. Mikið álag sé á netöryggissveitinni þessa stundina og aðilar sem reka mikilvæg kerfi hvattir til að tilkynna öll atvik til hennar.
„Það mun væntanlega skýrast þegar við náum betri tökum á þessu.“ Megintilgangurinn með virkjun viðbragðsáætlunarinnar sé að hvetja aðila til að tilkynna atvik til netöryggissveitarinnar CERT-IS svo hún fái skýrari mynd af því sem er að gerast.
Eru viðkvæm gögn eða upplýsingar undir í þessum nýju árásum sem þú átt við?
„Margir voru kallaðir til og það er verið að vinna að því að ná skýrari mynd af því hvort eitthvað slíkt hafi gerst.“
Runólfur segir að búið sé að virkja sérstaka viðbragðsáætlun á óvissustigi sem jafngildir því að almannavarnadeild lýsi yfir óvissustigi almannavarna. Ekki sé talið að almenningi stafi nein ógn.
Fréttin er í vinnslu.