Reykjavíkurborg varð í dag fyrir netárás á hluta tölvukerfa sinna. Þetta kemur fram í tilkynningu frá borginni. Nánari upplýsingar verði veittar eftir því sem fram vindur.
Samkvæmt heimildum fréttastofu var brotist inn í gegnum Microsoft Azure. Netárásaraðilar hafi komist yfir einhver lykilorð og hafi komist inn í gagnagrunn. Leiða megi líkur að því að talsvert af gögnum sé undir.
Komist hafi upp um árásina í hádeginu en ekki liggi fyrir hve lengi árásaraðilarnir hafi náð að athafna sig. Grunur leiki á að árásin komi að utan en ekki í gegnum íslenska netþjóna.
Í tilkynningu frá borginni segir að gripið hafi verið til öryggisráðstafana um leið og árásin uppgötvaðist til að verja kerfi og gögn borgarinnar. Meðal annars hafi verið ákveðið að taka fjölda rafrænna þjónustukerfa tímabundið úr sambandi.
Sérfræðingar netöryggisfyrirtækisins Syndis og netöryggissveitarinnar CERT-IS vinna ásamt starfsfólki borgarinnar að því að greina umfang árásarinnar, tryggja öryggi kerfanna og koma þjónustu aftur í eðlilegt horf eins fljótt og kostur er.
„Vegna þessara ráðstafana má gera ráð fyrir röskun á rafrænni þjónustu borgarinnar næstu daga. Sum þjónustukerfi kunna að verða óaðgengileg, að öllu leyti eða að hluta, meðan unnið er að því að tryggja öryggi þeirra og virkni,“ segir í tilkynningunni.